Héldu byssu að andliti drengs í Reykjavík: Óhugnanleg brotahrina eins hinna grunuðu
Karlmaður, sem grunaður er um fjölda alvarlegra brota á þessu ári, skal sæta gæsluvarðhaldi til 2. desember næstkomandi samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Landsréttur hefur vísað frá kæru mannsins vegna annmarka á henni.
Maðurinn er grunaður um aðild að vopnuðu ráni gegn dreng í Reykjavík í síðustu viku. Þá er hann til rannsóknar vegna fjölda annarra brota, meðal annars stórfelldra líkamsárása, rána, frelsissviptingar og hótana.
Fram kemur í úrskurði Landsréttar frá því í gær að fjórir menn hafi veist að drengnum 4. nóvember þegar hann var á leið heim. Drengurinn reyndi að komast undan mönnunum en einn þeirra náði honum og hélt skotvopni að andliti hans.
Skömmu síðar komu hinir þrír og kröfðu drenginn um pakka sem hann hafði sótt í póstbox og farsíma hans. Mennirnir eru sagðir hafa farið inn á bankareikninga drengsins í símanum og millifært 120 þúsund krónur inn á reikning þriðja aðila.
Þegar drengurinn útskýrði að frekari fjármunir væru á læstum reikningi dró einn mannanna upp hníf. Drengurinn var jafnframt sleginn með krepptum hnefa í kjálkann og potað í hann með skrúfjárni sem tekið hafði verið úr vinnubuxum hans. Hann hlaut minniháttar áverka og var í miklu uppnámi þegar lögregla ræddi við hann eftir atvikið.
Grunaður um fjölmargar árásir
Við rannsókn málsins var maðurinn handtekinn ásamt öðrum aðilum. Í ljós kom að hann var þegar til rannsóknar vegna fjölda annarra brota.
Alls eru 15 mál skráð á manninn í kerfum lögreglu frá áramótum, þar af ellefu vegna meintra brota frá því í ágúst. Meðal þeirra eru stórfelldar líkamsárásir, rán, frelsissvipting, fjárkúgun, hótanir og vopnalagabrot.
Maðurinn er meðal annars grunaður um að hafa stungið öryggisvörð í verslun með hnífi 24. október. Öryggisvörðurinn hlaut stungusár og er myndband af árásinni meðal rannsóknargagna lögreglu.
Þá er maðurinn grunaður um að hafa slegið annan öryggisvörð með flösku í ágúst og tekið þátt í frelsissviptingu, fjárkúgun og stórfelldri líkamsárás síðar í sama mánuði. Í janúar kom lögregla að honum með blóðugan hníf í hendi á vettvangi meintrar líkamsárásar.
Hann er einnig grunaður um að hafa sparkað í andlit lögreglumanns í október. Það atvik náðist á búkmyndavél lögreglu.
Talinn líklegur til að halda áfram
Lögregla telur yfirgnæfandi líkur á því að maðurinn haldi áfram brotastarfsemi verði hann látinn laus.
Verjandi mannsins benti á að um ungan og viðkvæman mann væri að ræða og að gæsluvarðhald væri mjög íþyngjandi úrræði.
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst hins vegar á kröfu lögreglu og taldi brotahrinuna svo alvarlega að ekki yrði séð að hægt væri að stöðva hana með öðrum hætti en gæsluvarðhaldi.
Maðurinn kærði úrskurðinn til Landsréttar en málinu var vísað frá þar sem ekki voru tilgreindar ástæður kærunnar. Gæsluvarðhald héraðsdóms til 2. desember stendur þar af leiðandi.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗