Tíðindi af Tom Brady

Helgi Fannar Sigurðsson

Þriðjudaginn 10. nóvember 2026 12:30

Tom Brady. Mynd/Getty Images

Tom Brady, goðsögn í amerískum fótbolta, hefur sagt skilið við Birmingham City sem leikur í ensku B-deildinni í knattspyrnu.

Brady eignaðist minnihluta í félaginu í ágúst 2023 og tók jafnframt við formennsku í ráðgjafaráði þess. Hann átti meðal annars að nýta reynslu sína til að aðstoða félagið við uppbyggingu á því.

Birmingham hefur nú staðfest að samstarfinu sé lokið og þakkar Brady fyrir framlag hans undanfarin þrjú ár.

Brady vann Super Bowl sjö sinnum á glæsilegum ferli sínum í NFL-deildinni og hefur einnig fjárfest í Las Vegas Raiders og Las Vegas Aces.

Hann yfirgefur Birmingham í góðri stöðu en liðið er á toppi ensku B-deildarinnar með 29 stig eftir 15 leiki.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅