Jónas heldur ekki vatni yfir Daða og Sinfó - „Steikt ýsa með sítrónupipar getur verið góð“

Óhætt er að segja að hinn orðheppni og hispurslausi tónlistargagnrýnandi Jónas Sen hafi verið afar ánægður með tónleika Daða Freys Péturssonar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem fram fóru síðastliðið fimmtudagskvöld.

Jónas hefur lof sitt á eftirfarandi orðum:

„Steikt ýsa með sítrónupipar getur verið góð. En steikt ýsa með mjög miklum sítrónupipar er ekkert endilega miklu betri. Í gegnum tíðina hafa popptónleikar með Sinfóníuhljómsveit Íslands einmitt einkennst af of miklum sítrónupipar. Hljómsveitin þekur aumingja poppsöngvarann í svo miklum pipar að hann verður óætur.“

Jónas vill hins vegar meina að Sinfóníuhljómsveitinni hafi ekki tekist að gleypa Daða Frey algjörlega eins og raunin hafi verið með aðra poppsöngvara:

„Daði Freyr býr nefnilega yfir raddböndum sem eru ekkert venjulega voldug. Meðan við hin verðum hás við það eitt að kalla á hundinn, stendur Daði bara þarna eins og hann sé að bíða eftir strætó, opnar munninn og út kemur þessi billjón króna rödd — þétt, kristaltær og algjörlega áreynslulaus.“

Fara heim

Jónas lýsir einnig yfir mikilli ánægju með útsetningar Sinfóníunnar og ekki síður sviðsframkomu Daða Freys:

„Daði er með einhverja mest afslöppuðu útgeislun sem sést hefur síðan letidýrið var skapað og plantað á trjágrein í aldingarðinum Eden. Hann var gjörsamlega laus við alla stjörnustæla og tilgerð, og virtist fyrst og fremst vera þarna af því að honum fannst þetta vandræðalega gaman.“

„Söngurinn og sjarminn voru þannig að maður hefði glaður hlustað á Daða syngja símaskrána allt kvöldið.“

Jónas fer síðan í gegnum tónleikana í megindráttum og lofar ekki síður aðra söngvara sem stigu á svið á tónleikunum. Hann segir að undir lokin hafi Daði Freyr farið að syngja lög sem hafi gefið merki um að kominn væri tími fyrir áhorfendur til að fara heim:

„Áhorfendur í Eldborg vildu ekki heyra á það minnst. Þeir neituðu alfarið að hreyfa sig úr sætunum og tóku Daða í raun í gíslingu með lófataki.“

Stemningin hafi síðan farið í hæstu hæðir í seinna aukalagi tónleikana, þekktasta lagi Daða Freys Think About Things:

„Á þeim tímapunkti fóru hlutirnir úr böndunum. Enginn vissi lengur hver var að skemmta hverjum; virðulegir hljóðfæraleikarar í kjólfötum, Daði og áhorfendur voru öll komin í eina allsherjar, tjúllaða sveitaballsstemningu.“

Er það niðurstaða Jónasar að kvöldið hafi verið stórfenglegt og Daði Freyr ótvíræður sigurvegari.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅