Telur dánaraðstoð í Kanada komna út fyrir öll velsæmismörk eftir að faðir hans ákvað að deyja
Er réttlætanlegt að svipta aðra manneskju lífi ef hún kærir sig ekki um að lifa lengur eða vill fá að deyja með reisn á eigin forsendum? Á þessu eru skiptar skoðanir en þeir sem styðja rétt fólks til að ráða eigin lífslokum eru gjarnan hlynntir dánaraðstoð sem er nú lögleg t.d. í Kanada, Hollandi, Sviss og í sumum ríkjum Bandaríkjanna. Hin spurningin er svo hversu illa haldið fólk þarf að vera til að það réttlæti slíka aðstoð. Undanfarið hefur borið á gagnrýni um að skilyrði fyrir dánaraðstoð séu alltof væg og að sums staðar sé fólki heimilað að deyja þótt það hefði kannski verið hægt að lina þjáningar þess með öðrum hætti, svo sem með viðeigandi meðferð við þunglyndi.
Eric Edmeades telur að dánaraðstoð í Kanada sé gengin of langt. Faðir hans, Baz, ákvað að sækja um dánaraðstoð í ársbyrjun 2023 eftir skammvinn veikindi. Fjölskylda hans taldi að ferlið myndi taka nokkra mánuði og að þau hefðu þar með tíma til að telja Baz af þessari afdrifaríku ákvörðun. COVID-tíminn hafði reynst Baz erfiður en hann hafði áður verið heilsuhraustur þrátt fyrir að vera kominn vel á áttræðisaldur. Nú glímdi hann skyndilega við flogaveiki og viðvarandi taugaverki. Faraldurinn gerði það einnig að verkum að Baz komst ekki lengur í heilsubótargöngur sem bitnaði á úthaldi, þreki og hreyfigetu. Skyndilega var Baz orðinn gamall maður og hann kunni því illa.
Baz hafði rætt um dánaraðstoð við fjölskyldu sína en hún hafði ekki tekið því alvarlega. Edmeades heimsótti pabba sinn í janúar 2024 og óraði ekki fyrir því að hann væri að kveðja pabba sinn fyrir fullt og allt. Fjölskyldan hélt að þetta tæki tíma en raunin var sú að þetta gekk mjög hratt fyrir sig. Margir reyndu að telja Baz hughvarf en hann sat við sinn keip. Þann 27. febrúar 2024 lét hann lífið á eigin forsendum en þvert á vilja aðstandenda.
„Skyndilega kom bara að þessu,“ sagði Edmeades í samtali við Fox.
Edmeades telur að dánaraðstoðarkerfið í Kanada þurfi betri varnagla. Það þurfi verkferla sem tryggja að enginn sé að taka svona afdrifaríka ákvörðun í hvatvísi.
„Það sem við erum að sjá gerast í Kanada er komið langt út fyrir öll velsæmismörk“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗