Bjarki Már gefið mörgum langt nef

Hornamaðurinn reyndi Bjarki Már Elísson var besti leikmaður íslenska liðsins í síðasta verkefni. Morgunblaðið/Eyþór

Íslenska karlalandsliðið í handbolta fer vel af stað í undankeppni EM sem fram fer árið 2028 í Portúgal, Sviss og á Spáni.

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í Laugardalshöll síðastliðinn miðvikudag, 48:26, og fylgdi því eftir með öðrum sannfærandi sigri á Eistlandi í Tallinn á sunnudaginn var, 39:26.

Ísland er því með 35 mörk í plús eftir fyrstu tvo leikina og á toppi þriðja riðils en Serbía er einnig með fullt hús stiga en lakari markatölu.

Hér fyrir neðan verður farið yfir frammistöðu allra leikmanna sem komu við sögu hjá íslenska liðinu í leikjunum tveimur og stöðu þeirra fyrir HM sem fram fer í byrjun næsta árs.

Umsögn um leikmenn

Arnar Freyr Arnarsson – Kom af bekknum gegn Úkraínu, skoraði tvö mörk og var fínn. Fékk stærra hlutverk í fjarveru Elliða Snæs Viðarssonar gegn Eistlandi og komst ágætlega frá sínu í sókn en var stundum klaufi í vörninni. Skoraði fimm mörk samanlagt og verður í hópnum í janúar.

Bjarki Már Elísson – Besti maður íslenska liðsins í verkefninu. Hann var markahæstur með 16 mörk og komu tíu þeirra gegn Eistlandi. Það sem gerir frammistöðu Bjarka enn betri er sú staðreynd að hann spilaði bara einn hálfleik í hvorum leik og gerði því 16 mörk í samtals einum leik. Hann klikkaði varla á færi og hefur gefið þeim sem töldu daga hans hjá landsliðinu talda langt nef.

Björgvin Páll Gústavsson – Úkraínu gekk betur að skora eftir að Björgvin kom inn í seinni hálfleikinn í fyrri leiknum og það sama má segja um seinni leikinn gegn Eistlandi. Honum til varnar var rúllað vel á liðinu og því ekki sterkasta vörnin fyrir framan hann. Ekki hans bestu leikir en er væntanlega á leiðinni á HM.

Elliði Snær Viðarsson – Spilaði aðeins fyrri leikinn og fór minna fyrir honum en oft áður, þar sem hann skoraði aðeins tvö mörk. Fór ekki með til Eistlands en er algjör lykilmaður á báðum endum vallarins og fer á HM.

Elvar Örn Jónsson – Virkilega sterkur í vörn að vanda og íslenska liðið er betra þegar Elvar er inni á vellinum. Skoraði þrjú mörk samtals en bestu tilþrif Elvars komu í vörninni. Lykilmaður og á leiðinni á HM.

Gísli Þorgeir Kristjánsson – Stýrði sóknarleiknum mjög vel í báðum leikjum en skoraði minna en oft áður, samanlagt fjögur mörk. Gerði vel í að koma liðsfélögum sínum inn í báða leiki og tók af skarið þess á milli. Fékk fína hvíld og verður vonandi ferskur á HM.

Haukur Þrastarson – Nýtti sínar mínútur ekki alveg nógu vel. Er oft fyrsti maður af bekknum en það gæti verið að breytast. Skoraði samanlagt aðeins tvö mörk gegn liðum sem eru langt frá því að vera eins sterk og það íslenska. Hauki gengur betur með félagsliði sínu í Þýskalandi en landsliðinu.

Janus Daði Smárason – Komst vel frá sínu, skoraði samtals sex mörk og bauð upp á skemmtileg tilþrif í báðum leikjum. Fékk góða hvíld sem ætti að gera honum gott. Verður væntanlega í byrjunarliðinu á HM.

Jón Bjarni Ólafsson – Nýtti þær mínútur sem hann fékk vel og skoraði jafnmörg mörk og Arnar Freyr samanlagt í þessu verkefni þrátt fyrir að spila mun minna. Gerði sitt en það er óvíst hvort það dugi til að vera valinn í HM-hópinn þar sem Elliði og Arnar eru enn þá á undan honum í goggunarröðinni.

Kristján Örn Kristjánsson – Fékk tækifærið í fjarveru Viggós Kristjánssonar og nýtti það ágætlega. Skoraði fimm mörk samanlagt þrátt fyrir að spila nokkuð lítið. Er á eftir Viggó og Ómari Inga í röðinni og var ekki með á síðasta stórmóti. Það er ólíklegt að það breytist ef Viggó verður heill.

Orri Freyr Þorkelsson – Einn traustasti leikmaður Íslands. Klikkar varla á skoti en Bjarki gerði enn betur í sömu stöðu í þessu verkefni. Það verður gaman að sjá hvor þeirra kemur til með að spila meira á HM í byrjun næsta árs.

Óðinn Þór Ríkharðsson – Annar afar traustur leikmaður og einn sá skemmtilegasti í liðinu. Nýtir færin sín oftast mjög vel og býður upp á tilþrif sem öðrum dettur ekki í hug að reyna. Hann skoraði átta mörk í þessu verkefni þrátt fyrir að fá nokkra hvíld. Verður líklegast í byrjunarliðinu á HM.

Ómar Ingi Magnússon – Naut sín sérstaklega vel í fyrri leiknum þegar hann bauð upp á skemmtileg tilþrif. Rólegri í seinni leiknum og sérstaklega í markaskorun. Fékk fína hvíld og verður vonandi í sínu besta formi á HM, íslenska liðið þarf á því að halda.

Reynir Þór Stefánsson – Einn allra besti leikmaður Íslands í þessu verkefni. Skoraði ellefu mörk, bauð upp á skemmtileg tilþrif og gæti verið kominn fram úr Hauki sem fyrsti varamaður inn. Óhræddur við að láta vaða og rúmlega ársdvöl í Þýskalandi hefur gert hann að betri leikmanni. Enn ungur og getur orðið svakalega góður. Er að öllum líkindum á leiðinni á sitt fyrsta stórmót í janúar.

Sigvaldi Björn Guðjónsson – Fékk að spila seinni hálfleikinn í báðum leikjum og var traustur án þess að vera rosalega áberandi. Var ekki með fyrr en í lokin á síðasta stórmóti þegar hann var kallaður inn. Vill vera með frá byrjun núna og er líklegur.

Teitur Örn Einarsson – Spilaði ekki fyrri leikinn og var ekki mjög áberandi í þeim seinni. Var með á síðasta stórmóti þar sem fjölhæfni hans átti að koma sér vel. Teitur spilaði hins vegar lítið á því móti og alls ekki ólíklegt að Sigvaldi komi inn í hópinn í staðinn fyrir Selfyssinginn.

Viktor Gísli Hallgrímsson – Átti ekki sinn besta leik gegn Úkraínu en spilaði betur á móti Eistlandi þar sem hann var með rúmlega 40 prósenta markvörslu og varði eitt víti. Vantar stundum meiri stöðugleika í Viktor sem verður aðalmarkvörður á HM. Íslenska liðið verður í góðum málum í janúar ef við fáum réttu útgáfuna af Viktori í sem flestum leikjum.

Snorri Steinn Guðjónsson – Ekki hægt að kvarta mikið yfir landsliðsþjálfaranum í þessum leikjum. Byrjaði með sitt sterkasta lið í báðum leikjum sem stakk andstæðingana af. Aðrir fengu svo að spreyta sig þegar staðan var orðin góð og lykilmenn fengu hvíld. Dreifði álaginu vel og þetta var aldrei í hættu.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅