Dularfullt andlát um borð í skemmtiferðaskipi – FBI rannsakar málið
Bandaríska alríkislögreglan FBI rannsakar grun um manndráp um borð í stóru skemmtiferðaskipi sem þurfti að snúa aftur til hafnar í Galveston í Texas eftir alvarlegt atvik um borð. Einn einstaklingur hefur verið handtekinn vegna málsins.
Fréttastofa AP greinir frá þessu.
Um er að ræða skemmtiferðaskipið MSC Seascape, sem getur tekið tæplega 5.900 farþega og er með rúmlega 1.600 manna áhöfn. Skipið var á leið frá Galveston til Karíbahafsins þegar atvikið kom upp.
FBI staðfesti á mánudag að grunur léki á að manndráp hefði verið framið um borð. Ekki hefur verið upplýst hver hinn látni er, hvernig andlátið bar að eða hvort ákæra hafi verið gefin út.
Í yfirlýsingu frá skipafélaginu MSC Cruises kemur fram að yfirvöld hafi fyrirskipað skipinu að snúa aftur til hafnar eftir að tilkynnt var um atvikið. Félagið segist vinna náið með lögreglu og veita þeim sem málið hefur áhrif á nauðsynlegan stuðning.
Skipið hélt aftur úr höfn síðdegis í gær og siglir nú samkvæmt áætlun.
Rannsóknir á grun um manndráp um borð í skemmtiferðaskipum eru sjaldgæfar. Fyrr á þessu ári var unglingur ákærður fyrir morð og alvarlegt kynferðisbrot í tengslum við dauða 18 ára stjúpsystur sinnar um borð í skemmtiferðaskipi sem sigldi frá Flórída.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗