Fá ekki að leggja fram álit landlæknis í manndrápsmáli
Sakamálið var höfðað með ákæru héraðssaksóknara 30. mars. Skúla Tómasi er gefið að sök manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn, en til vara manndráp af gáleysi og brot gegn sömu lögum. AFP
Landsréttur hefur staðfest að aðstandendur konu fái ekki að leggja fram álit landlæknis og fleiri gögn í sakamáli þar sem Skúli Tómas Gunnlaugsson hjartalæknir er ákærður fyrir að hafa svipt hana lífi. Aðstandendurnir vildu leggja gögnin fram til stuðnings bótakröfum sínum.
Þeim er þó heimilt að leggja fram tvö erindi sem eitt þeirra sendi landlækni vegna kvörtunar um meðferð konunnar.
Landsréttur staðfesti 6. nóvember úrskurð Héraðsdóms Reykjaness frá 28. október með vísan til forsendna hans. Niðurstaðan um framlagningu gagnanna er því sú sama á báðum dómstigum.
Krefjast samtals 25 milljóna í miskabætur
Sakamálið var höfðað með ákæru héraðssaksóknara 30. mars. Skúla Tómasi er gefið að sök manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn, en til vara manndráp af gáleysi og brot gegn sömu lögum.
Eftirlifandi maki konunnar og börn hennar, alls fimm manns, gera bótakröfur í málinu. Hvert þeirra krefst fimm milljóna króna í miskabætur og 177 þúsund króna vegna útfararkostnaðar, auk vaxta og málskostnaðar.
Úrskurðirnir fjalla eingöngu um framlagningu gagna. Þar er hvorki tekin afstaða til sektar ákærða né bótakrafnanna.
Gögn úr kvörtunarmáli hjá landlækni
Ágreiningurinn snerist um sjö fylgiskjöl með bótakröfunum. Gögnin tengdust kvörtunarmáli hjá landlækni vegna meintrar vanrækslu og mistaka Skúla Tómasar við veitingu heilbrigðisþjónustu.
Meðal þeirra voru álit landlæknis frá febrúar 2021, samantekt á niðurstöðum þess, tvær umsagnir sérfræðings sem landlæknir hafði aflað og sjónarmið ákærða vegna annarrar umsagnarinnar. Hin skjölin tvö voru erindi eins aðstandandans til landlæknis.
Skúli Tómas mótmælti framlagningu allra sjö skjalanna. Hann vísaði meðal annars til lagaákvæðis sem bannar að skýrslum landlæknis um rannsókn einstakra mála sé beitt sem sönnunargögnum í sakamálum. Ákvæðið takmarkar einnig notkun upplýsinga sem heilbrigðisstarfsmenn hafa veitt embættinu.
Ákæruvaldið lét þennan þátt málsins ekki til sín taka.
Bannið náði einnig til eldri gagna
Aðstandendurnir byggðu meðal annars á því að gögnin hefðu verið komin til lögreglu áður en lagaákvæðið tók gildi 1. september 2024. Því fæli bann við framlagningu þeirra í sér afturvirka beitingu ákvæðisins.
Héraðsdómur féllst ekki á það. Þótt gögnin hefðu orðið til fyrir gildistöku ákvæðisins hefði sakamálið verið höfðað eftir hana. Takmörkunin gilti því um notkun gagnanna í málinu.
Dómurinn vísaði jafnframt til þess að ákvæðinu væri ætlað að vernda trúnað í samskiptum við landlækni og rétt sakborninga til að fella ekki á sig sök. Þau sjónarmið ættu við óháð því hvenær gögnin hefðu orðið til.
Ekki skipti heldur máli hvort ákæruvaldið eða þeir sem gerðu bótakröfur í sakamálinu legðu gögnin fram.
Tvö erindi féllu utan bannsins
Aðstandendunum var því meinað að leggja fram álit landlæknis, samantektina, sérfræðiumsagnirnar tvær og sjónarmið ákærða.
Erindi aðstandandans til landlæknis voru hins vegar ekki talin falla undir bannið. Þá taldi dómurinn ekki unnt á þessu stigi að fullyrða að þau væru bersýnilega tilgangslaus til sönnunar eða bótakröfunum óviðkomandi. Framlagning þeirra var því heimiluð.
Einn aðstandendanna kærði úrskurðinn og krafðist heimildar til að leggja öll fylgiskjölin fram. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms að öllu leyti.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗