Verði einn helsti áfangastaður heims
Forsvarsmenn Bláa lónsins vilja gera Ísland að einum helsta heilsu- og upplifunaráfangastað í heimi á næstu fimm til tíu árum.
Þetta kom fram í ávarpi Gríms Sæmundsen, stjórnarformanns, stærsta eiganda og stofnanda Bláa lónsins, á kynningarfundi vegna hlutafjárútboðs fyrirtækisins sem hófst í dag.
Hann sagði að formlegur undirbúningur að verkefninu hefði byrjað í maí síðastliðnum.
„Við vorum byrjuð að huga að því að skrá Bláa lónið á markað árið 2020. Þá kom covid. Við fórum aftur af stað árið 2023 með það að markmiði að skrá félagið á markað vorið ´24 en þá komu eldsumbrot. En allt er þegar þrennt er og hér erum við og skráningarferli á félaginu er hafið,“ sagði Grímur.
„Gríðarlega metnaðarfull uppbyggingaráform“
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, steig næst í pontu og sagði Bláa lónið eiga sér enga hliðstæðu, hvorki hér á landi né erlendis. Fyrirtækið væri 34 ára gamalt en samt sem áður vaxtafélag með meðaltekjuvöxt upp á 11% á ári.
„Þetta er fyrirtæki með gríðarlega metnaðarfull uppbyggingaráform,“ sagði Sigríður Margrét og nefndi að mikill meðbyr væri í vellíðunarhagkerfinu. Hún sagði Bláa lónið stefna á að sækja um 105 milljónir evra, eða tæpa 15 milljarða króna, í nýtt hlutafé. Markmiðið væri bæði að styrkja félagið en líka að bjóða almennum fjárfestum að taka þátt í vegferðinni.
Hún sagðist gera ráð fyrir að samstaðan, eftir að kaupin á Arctic Adventures, hefðu gengið í gegn, myndi á næsta ári velta 291 milljón evra, eða um 40 milljörðum króna. Benti hún í kjölfarið á að Arctic Adventures ættu Fjarðargljúfur, einn vinsælasta áfangastað landsins, þar sem fyrirtækið ætti 315 hektara af landi. Þar væru því miklir þjónustu- og uppbyggingarmöguleikar. Einnig nefndi hún að Arctic Adventures ætti Kerið og annaðist rekstur Lava Tunnel, eða Raufarhólshellis.
Þjórsárdalur næsta flaggskipið
Sigríður Margrét sagði ferðavilja á heimsvísu aldrei hafa verið meiri en í fyrra og að Íslendingar tækju á móti um 2,3 milljónum ferðamanna á ári. Bláa lónið ætlaði að staðsetja Ísland sem einn helsta upplifunar- og vellíðunaráfangastað heimsins.
„Landið okkar er með innbyggðan vellíðunarsegul,“ bætti hún við og minntist í því samhengi á náttúruna, jarðhitann, hreina loftið, mikið öryggi og há lífsgæði.
Hún sagði að næsta flaggskip samstæðunnar væri Þjórsárdalur þar sem endalausir möguleikar væru á upplifun og afþreyingu. Þar væri Bláa lónið að byggja lúxushótelið Mountain Retreat, Fjallaböðin og gestastofu, ásamt tjaldsvæði og 40 smáhýsum.
Heildarfjárfesting vegna verkefnisins er áætluð um 138 milljónir evra, sem jafngildir um 19 milljörðum króna, og stefnt er að því að 65% þess ljúki fyrir lok þessa árs. Áætlað er að opna vorið 2028.
Því næst nefndi hún uppbyggingu ferðaþjónustu, eða Glacier Baths og Glacier Retreat, við Hoffell. Þar væri Bláa lónið búið að tryggja sér heitt vatn. Umhverfismat og hönnun eru í gangi í tengslum við það verkefni.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

