Ráðinn þjálfari Fylkis
Aron Baldvin Þórðarson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Fylkis í fótbolta. Hann gerði þriggja ára samning við Árbæjarfélagið í dag.
Aron, sem er 31 árs gamall, verður aðalþjálfari í fyrsta skipti en hann hefur verið aðstoðarþjálfari Víkings undanfarin ár.
Aron þekkir mjög vel til í Árbænum því hann er uppalinn Fylkismaður. Tekur hann við af Heimi Guðjónssyni sem er tekinn við ÍA.
Fylkir endaði í þriðja sæti 1. deildarinnar á síðustu leiktíð og tapaði gegn Þrótti í úrslitum umspilsins á Laugardalsvelli.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗