Jólabakstur hjá Evu Laufeyju endaði með látum
Eva Laufey Kjaran bauð góðum vinum að baka fyrir jólin og úr varð dagur sem enginn mun gleyma. Samsett mynd/Aðsend
Brynjar Steinn Gylfason, betur þekktur sem Binni Glee, tók baksturinn föstum tökum þegar Eva Laufey Kjaran bauð hópi þekktra gesta í kökubakstur og kokteila í Salt Eldhúsi nýverið. Svo hraustlega opnaði hann ofninn að hurðin fór af hjörunum.
Birgitta Líf Björnsdóttir og Arnar Máni Ingólfsson, betur þekktur sem Arnar Æði, voru einnig meðal gesta. Fyrr um daginn höfðu börn og foreldrar bakað og skreytt smákökur undir leiðsögn Evu Laufeyjar. Tilefnið var að kökudeig og bakaðar smákökur hennar eru aftur komnar í verslanir fyrir jólavertíðina.
Katrín Edda Þorsteinsdóttir og Elísa Eyþóra dóttir hennar gáfu sér tíma fyrir myndatöku, en svo tók baksturinn við. Ljósmynd/Aðsend
Börnin sáu um skreytingarnar
Á fyrri viðburðinum fengu börn og foreldrar að baka og skreyta smákökur undir leiðsögn Evu. Litrík smjörkrem, sælgæti og kökuskraut voru á borðum og þátttakendur útfærðu skreytingarnar eftir eigin höfði.
Helga Gabríela Sigurðardóttir, matreiðslumaður og smurbrauðsjómfrú, kunni til verka í eldhúsinu, en hafði gaman af því að baka með börnunum. Ljósmynd/Aðsend
„Mig langaði að fagna því að vörurnar væru komnar aftur í verslanir með því að bjóða fólki að koma saman og baka. Ég elska að skapa svona stundir þar sem fólk hittist, hefur gaman og nýtur þess að gera eitthvað saman,“ segir Eva Laufey.
Kökudeig og litríkar skreytingar voru á borðum þegar gestir Evu Laufeyjar tóku til við baksturinn. Ljósmynd/Aðsend
Hún segir hugmyndaflug yngstu bakaranna hafa sett svip á daginn.
„Fyrri parturinn með börnunum var alveg dásamlegur og það var yndislegt að sjá hvað þau voru hugmyndarík við skreytingarnar.“
Litríkt sælgæti og kökuskraut beið bakaranna, sem fengu að láta hugmyndaflugið ráða við skreytingarnar. Ljósmynd/Aðsend
Bakstur og kokteilar
Síðar um daginn bauð Eva Laufey til sín hópi þekktra gesta í kökubakstur og kokteila. Meðal þeirra sem tóku fram bökunaráhöldin voru Birgitta Líf Björnsdóttir, Binni Glee og Arnar Æði. Gestir prófuðu mismunandi útfærslur á smákökunum og með bakstrinum voru bornir fram kokteilar í boði Ólafsson Gin.
„Seinni parturinn var svo ekki síður skemmtilegur, þar sem við bökuðum, spjölluðum og nutum góðra kokteila. Þetta var nákvæmlega sú stemning sem ég hafði séð fyrir mér,“ segir hún.
Binni Glee tók svo hraustlega á því við að opna ofninn að hurðin fór af hjörunum. Alexander Aron Guðjónsson og Eva Laufey Kjaran voru honum til halds og trausts þegar baksturinn breyttist óvænt í viðhaldsverkefni. Ljósmynd/Aðsend
Í ár eru fjórar tegundir af kökudeigi í boði, þar á meðal ný tegund með karamellu og hvítu súkkulaði. Vörurnar eru unnar í samstarfi við Mylluna og fást í Hagkaup og Bónus.
Fleiri bakstursstundir fram undan
Fram undan eru einnig bakstursnámskeið Evu í samstarfi við Salt Eldhús. Þar verður lögð áhersla á bakstur og að þátttakendur læri nýjar aðferðir.
„Fyrir mér hefur bakstur alltaf snúist um svo miklu meira en bara kökurnar sjálfar. Þetta snýst um gæðastundirnar, stemninguna og minningarnar sem verða til í eldhúsinu. Það er einmitt það sem mig langar að miðla áfram,“ segir Eva Laufey.
„Fyrir mér hefur bakstur alltaf snúist um svo miklu meira en bara kökurnar sjálfar,“ segir Eva Laufey. Ljósmynd/Aðsend
Arnar Æði, hlustaði einbeittur á leiðbeiningar Evu Laufeyjar. Hann stóð svo sannarlega undir nafni í bakstrinum. Ljósmynd/Aðsend
„Þetta snýst um gæðastundirnar, stemninguna og minningarnar sem verða til í eldhúsinu,“ segir Eva Laufey. Ljósmynd/Aðsend
Alexander gekk á milli borða og lánaði bökurum dómgreind sína. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Ljósmynd/Aðsend
Eva Laufey gekk á milli bakaranna og gaf góð ráð. Bryndís Ottesen stóð sig eins og hetja. Ljósmynd/Aðsend
Það reynir á athyglina að hræra saman krem fyrir smákökurnar. Ýr Finnbogadóttir við hrærivélina. Ljósmynd/Aðsend
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/10/1691030.jpg)




















