Fljúga beint frá Akureyri til Tenerife

Icelandair ætlar að hefja áætlunarflug frá Akureyri til Tenerife.

Icelandair ætlar að hefja áætlunarflug frá Akureyri til Tenerife. mbl.is/Sigurður Bogi

Íslenska flugfélagið ætlar að hefja áætlunarflug frá Akureyri til Tenerife á Kanaríeyjum. Flogið verður einu sinni í viku á þriðjudögum frá 19. október 2027 til 18. apríl 2028. Með þessu bætist við nýr valkostur fyrir íbúa Norður- og Austurlands, sem geta nú flogið beint til Tenerife án þess að fara um Keflavíkurflugvöll. Tenerife er stærst Kanaríeyja og vinsæll áfangastaður Íslendinga yfir vetrartímann, enda þekkt fyrir gott veðurfar árið um kring.

„Við erum afar ánægð að bjóða upp á þessa nýju flugleið frá Akureyri til Tenerife í áætlunarflugi. Þetta er í fyrsta sinn sem við bjóðum upp á beint áætlunarflug út í heim frá Akureyri, en áður höfum við boðið upp á leiguflug þaðan. Nú er hægt að fara beint af skíðunum í sólina á Tenerife, án þess að fara fyrst suður. Við vonum að þessari nýjung verði tekið fagnandi,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í fréttatilkynningu. 

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. mbl.is/Eyþór Árnason

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅