Rúrik Gísla malar gull - Greiddi sér tug milljóna arð eftir vel heppnað IceGuys ævintýri

RG19 Viðburðir ehf., félag í eigu Rúriks Gíslasonar, fyrrum landsliðsmanns Íslands í knattspyrnu, skilaði tæplega 11,5 milljóna króna hagnaði á síðasta ári samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins.

Rekstrartekjur félagsins námu rúmlega 50 milljónum króna árið 2025 samanborið við 48,2 milljónir árið áður. Tekjurnar jukust því um tæpar tvær milljónir milli ára.

Ætla má að stór hluti teknanna tengist tónlistarstarfi Rúriks með hljómsveitinni IceGuys, sem hefur notið gríðarlegra vinsælda hér á landi undanfarin ár. Rúrik er einn meðlima sveitarinnar sem hefur komið víða fram á tónleikum og öðrum viðburðum.

Í ársreikningnum kemur fram að starfsemi félagsins felist meðal annars í framleiðslu og dreifingu tónlistar, tónleikahaldi, viðburðum, fyrirlestrum og annarri framkomu. Ekki kemur þó fram hvernig tekjurnar skiptast milli þessara verkefna.

Laun og launatengd gjöld félagsins námu 10,1 milljón króna á árinu en annar rekstrarkostnaður var tæplega 20,5 milljónir.

Félagið stendur vel fjárhagslega en eignir þess námu 105,4 milljónum króna í árslok 2025. Þar af voru tæplega 57 milljónir í handbæru fé.

Eigið fé félagsins nam 83,5 milljónum króna og hafði aukist um 7,5 milljónir frá fyrra ári.

Rúrik er eini eigandi félagsins og kemur fram í ársreikningnum að stjórn þess leggi til að greiddur verði 30 milljóna króna arður til hluthafa á árinu 2026.

Á síðasta ári voru greiddar fjórar milljónir króna í arð.

Rúrik lagði knattspyrnuskóna á hilluna árið 2020 en hefur síðan haslað sér völl í skemmtanabransanum, bæði hér heima og erlendis.

Miðað við ársreikninginn hefur sú starfsemi reynst honum ábatasöm og er gert ráð fyrir að rekstur félagsins verði með svipuðum hætti á þessu ári.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅