Hilmar enn sár og bitur þremur árum síðar: „Það versta var kannski ekki að missa heimilið“

Þrjú ár eru liðin síðan Hilmar Freyr Gunnarsson, byggingartæknifræðingur og húsasmíðameistari, þurfti að yfirgefa heimili sitt seint um kvöld. Spyr hann sig í dag hvort það hafi verið rétt ákvörðun og það sem sitji eftir með honum og mörgum fleiri sé hvað tók við eða tók ekki við í kjölfarið. 

„Þúsundir manna urðu á augabragði heimilislausar. Fjölskyldur dreifðust um landið. Sumir fengu inni hjá ættingjum, aðrir hjá vinum og aðrir leigðu það sem mögulegt var að finna á markaði sem var þegar sprunginn. Margir bjuggu á hótelum eða í sumarhúsum fyrstu vikurnar og mánuðina. En hvar var planað fyrir allt þetta? Hvar var neyðaráætlunin fyrir heilt samfélag sem missti heimili sín á einni nóttu?“

Hilmar Freyr segir í grein sinni að það versta hafi kannski ekki verið að missa heimilið, það versta hafi verið óvissan.

„Ég man eftir fyrstu mánuðunum. Fólk var ekki bara að glíma við náttúruhamfarir. Það var að reyna að halda fjölskyldum saman, finna húsnæði, tryggja skólagöngu barna, mæta í vinnu og halda einhverju eðlilegu lífi gangandi. Á sama tíma vissi enginn hvað myndi gerast næst.

Við vissum ekki hvort við myndum nokkurn tímann flytja aftur heim. Við vissum ekki hvað yrði um húsin okkar. Við vissum ekki hvort ríkið ætlaði að kaupa eignirnar, bæta tjón eða bíða og sjá. Vikurnar urðu að mánuðum og mánuðirnir að árum.“

Hilmar Freyr er einn þeirra fjölmörg íbúa Grindavíkur sem var gert að rýma bæinn fyrir þremur árum, seint um kvöld þann 10. nóvember 2023. 

Segir hann í grein sinni að það sé eins og enginn hafi hugsað ferlið lengra en að koma fólki úr bænum. 

Í kjölfarið tók við óvissa þar sem það átti endalaust að skoða málið, meta stöðuna, vinna að lausnum.

„Allir að gera sitt besta varð að einhverju slagorði fyrir klúðrinu og skipulagsleysinu af hendi almannavarna og ríkisins. Á meðan voru svörin oft óljós.“

Hilmar Freyr bendir á að margir Grindvíkingar stóðu frammi fyrir því að greiða hundruð þúsunda í leigu á sama tíma og þeir voru enn með skuldbindingar tengdar heimilunum sínum. „Fólk sem hafði byggt upp líf sitt í Grindavík yfir áratugi þurfti allt í einu að byrja upp á nýtt annars staðar án þess að vita hvort það væri tímabundið eða varanlegt.“

„Það sem hefur valdið mér mestum vonbrigðum síðustu þrjú ár er að svo oft virtist sem stjórnvöld væru ekki að stýra atburðarásinni heldur elta hana.“

Segir íbúa ekki hafa setið við sama borð

Segir Hilmar Freyr að ekki hafi verið nægilega passað upp á að fólk stæði við sama borð þegar kom til dæmis að lánamálum þar sem bankar frystu greiðslur að mest en lífeyrissjóðir sátu eftir og biðu. 

„Stjórnmálafólk þóttist koma af fjöllum oft í umræðunni. Náttúruhamfaratrygging Íslands lét gera ástandsskoðanir á eignum sem allar stærstu verkfræðistofur landsins tóku þátt í. Skoðanirnar voru 45 mínútna sjónskoðun og í kjölfarið ílla unnar skýrslur þar sem fullyrt var um ástand og lausn að úrbótum. Í mörgum tilfellum var um fúskviðgerðir og óraunhæft kostnaðarmat að ræða.“

Hilmar Freyr segir lausnirnar hafa komið sjaldan áður en vandamálin urðu. Lausnirnar hafi komið eftir að fólk hafði kvartað, eftir að fjölmiðlar höfðu fjallað um málin eða eftir að þrýstingur hafði byggst upp.

Stærsta lexían ekki hvernig á að rýma bæ

Segir Hilmar Freyr erfitt að skilja hvernig þjóð sem býr við eina virkustu jarðskjálfta- og eldvirknisvæði heims gat verið svona illa undirbúin fyrir afleiðingar rýmingarinnar.

„Við vorum með áætlanir um hvernig ætti að flytja fólk frá hættusvæði. En við virtumst ekki vera með áætlun um hvernig ætti að hjálpa því að lifa daginn eftir. Og daginn þar á eftir. Og mánuðina sem fylgdu.“

Segir hann að þegar litið er til baka er auðvelt að tala um milljarðana sem hafa farið í aðgerðir og stuðning. En málið snúist ekki bara um peninga.

„Þetta snýst um traust. Traust á því að stjórnvöld séu undirbúin þegar mest á reynir. Traust á því að fólk fái skýrar upplýsingar. Traust á því að ákvarðanir séu teknar hratt þegar líf heilla samfélaga eru í uppnámi. Fyrir mörg okkar brotnaði það traust á þessum fyrstu mánuðum.

Sumir hafa komið sér fyrir annars staðar. Aðrir bíða enn svara. Margir glíma enn við afleiðingar atburðanna, bæði fjárhagslega og andlega.

En það sem má ekki gerast er að þjóðin gleymi því sem gerðist eftir rýminguna.

Því stærsta lexían úr Grindavík er ekki hvernig á að rýma bæ. Stærsta lexían er hvernig á að hugsa um fólkið þegar búið er að rýma hann.“

Segir Hilmar Freyr þegar hann horfir til baka þremur árum seinna eðlilegt að spyrja einnar spurningar:

„Ef annað íslenskt samfélag þyrfti að yfirgefa heimili sín á morgun, er ríkið þá raunverulega betur undirbúið en það var í Grindavík?“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅