Víkingur staðfestir að Aron sé hættur og taki við Fylki

Aron Baldvin Þórðarson hefur látið af störfum sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Víkingi og tekur nú við sem aðalþjálfari Fylkis.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Víkingi í dag.

Aron Baldvin hefur starfað hjá Víkingi um árabil en hann hóf þjálfaraferil sinn hjá félaginu í yngri flokkum.

Árið 2022 gekk hann til liðs við þjálfarateymi meistaraflokks karla, fyrst undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar og síðar Sölva Geirs Ottesen.

Hann hefur meðal annars séð um leikjaundirbúning og taktíska þætti æfinga.

Á þessum tíma hefur Víkingur orðið Íslandsmeistari tvisvar, bikarmeistari tvisvar og meistari meistaranna þrisvar.

Þá átti Aron þátt í sögulegum árangri félagsins í Sambandsdeild Evrópu tímabilið 2024–25.

Víkingur fer fögrum orðum um Aron í tilkynningunni.

„Aron er Víkingur í gegn. Metnaður hans, fagmennska og ástríða fyrir leiknum hafa smitað út frá sér,“ segir félagið.

Víkingur þakkar Aroni fyrir störfin og óskar honum góðs gengis hjá Fylki.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅