Vilja takmarka notkun gjafafrumna við tvær fjölskyldur
Í tilkynningunni segir að brýnt sé að setja ákvæði sem takmarki notkun kynfrumna frá sama einstaklingi. Vegna smæðar þjóðarinnar sé lagt til að þær verði aðeins notaðar til að geta börn í tveimur fjölskyldum að hámarki. Ljósmynd/Colourbox
Lagt er til að notkun kynfrumna frá sama gjafa verði takmörkuð þannig að börn verði til í tveimur fjölskyldum að hámarki. Tillögunni er ætlað að draga úr hættu á of nánum skyldleika í ljósi smæðar íslensku þjóðarinnar.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins um frumvarpsdrög sem hafa verið birt til umsagnar. Þar er jafnframt lagt til að endurskoða skilyrði um hjúskap eða sambúð þeirra sem standa saman að tæknifrjóvgun.
Drögin varða breytingar á lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna. Með breytingunum er meðal annars horft til gæða og öryggis þjónustunnar, jafnréttis og réttar barna sem getin eru með gjafafrumum til að þekkja uppruna sinn.
Endurskoði kröfu um hjúskap eða sambúð
Í tilkynningunni segir að brýnt sé að setja ákvæði sem takmarki notkun kynfrumna frá sama einstaklingi. Vegna smæðar þjóðarinnar sé lagt til að þær verði aðeins notaðar til að geta börn í tveimur fjölskyldum að hámarki.
Þá er lagt til að endurskoða kröfu laganna um að einstaklingar séu í hjúskap eða sambúð til að geta staðið saman að tæknifrjóvgun. Vísað er til jafnréttissjónarmiða og þess að koma þurfi til móts við breytta samfélagsgerð.
Nafnlausar kynfrumugjafir til endurskoðunar
Nafnlausar kynfrumugjafir eru heimilar samkvæmt gildandi lögum. Í tilkynningunni segir að full ástæða sé til að endurskoða það fyrirkomulag í ljósi réttar þeirra sem getnir eru með gjafafrumum til að fá upplýsingar um líffræðilegan uppruna sinn.
Bent er á að slíkar upplýsingar séu ekki síst mikilvægar vegna þess að sífellt fleiri erfðasjúkdómar verði þekktir og þörf sé á að rekja þá meðal skyldmenna.
Gjöf fósturvísa og leyfisveitingar til skoðunar
Meðal annarra atriða sem þarfnast skoðunar og samráðs eru bann laganna við gjöf fósturvísa og fyrirkomulag leyfisveitinga til tæknifrjóvgunarþjónustu.
Samkvæmt gildandi lögum veitir heilbrigðisráðuneytið heilbrigðisstofnunum leyfi til að framkvæma tæknifrjóvgun. Embætti landlæknis veitir hins vegar almennt leyfi til reksturs heilbrigðisþjónustu.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗