Curry og félagar óstöðvandi – Doncic sneri aftur

Stephen Curry og félagar eru á skriði.

Stephen Curry og félagar eru á skriði. AFP/Lachlan Cunningham

Golden State Warriors valtaði yfir New Orleans Pelicans 138:87 og vann þar með sinn áttunda sigur í röð í NBA-deildinni í nótt.

Stephen Curry og Brandin Podziemski skoruðu 25 stig hvor og Yaxel Lendeborg bætti við 23 stigum.

Curry fór upp í 16. sæti yfir stigahæstu leikmenn í sögu NBA-deildarinnar, fór fram úr DeMar DeRozan og hefur nú skorað 26.803 stig.

Luka Dončić sneri aftur og leiddi Los Angeles Lakers til 124:114-sigurs á Atlanta Hawks með 32 stigum, tíu stoðsendingum og átta fráköstum. Þetta var sjötti sigur Lakers í röð.

Úrslit næturinnar:

Atlanta Hawks 114:124 Los Angeles Lakers

Charlotte Hornets 124:112 Cleveland Cavaliers

Detroit Pistons 122:111 Washington Wizards

Toronto Raptors 102:118 Memphis Grizzlies

Dallas Mavericks 125:122 Indiana Pacers

Houston Rockets 110:100 Denver Nuggets

Phoenix Suns 96:122 San Antonio Spurs

Golden State Warriors 138:87 New Orleans Pelicans

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅