Þriðja metárið í tilkynningum um hatursglæpi

Frá finnsku höfuðborginni Helsinki kom rúmur fimmtungur tilkynninga um hatursglæpi í Finnlandi í fyrra. AFP/Heikki Saukkomaa

Í fyrra barst lögreglunni í Finnlandi metfjöldi tilkynninga um meint hatursafbrot, eða 1.941, sem er þriðja árið í röð sem slíkt met er fært til bókar hjá lögreglu síðan skráningar hófust árið 2008.

Að sögn finnska lögregluháskólans, sem gefur þessa tölfræði út, hefur fjöldi tilkynntra hatursmála rúmlega tvöfaldast frá árinu 2020 að telja, en lögregla skráði 1.808 meinta hatursglæpi árið 2024.

Vörðuðu um 70 prósent tilkynninga ársins 2025 fjandskap eða fordóma vegna þjóðernis eða uppruna, alls rúmlega 1.300 tilkynnt mál. Algengast var að fólk í þjóðernislegum meirihlutahópi Finnlands skeytti skapi sínu á þjóðernis- eða menningarlegum minnihlutahópum þar sem ærumeiðingar voru algengasta háttsemin.

Múslimar oftast fyrir aðkasti vegna trúar

Sýrlenskir ríkisborgarar voru fjölmennastir í hópi brotaþola, en almennt, óháð þjóðerni, komu trúarbrögð og lífsskoðanir þolenda næst á eftir þjóðerni eða uppruna sem rót aðkastsins, þá kynhneigð og fötlun þar á eftir.

Tilkynningum vegna trúarbragða eða lífsskoðunar fjölgaði um 20 prósent um það bil miðað við árið 2025 og voru múslimar sá trúarhópur sem þar varð tíðast fyrir aðkasti.

Jenita Rauta, rannsakandi hjá finnska lögregluháskólanum, segir tölurnar yfir tilkynningar ekki sýna hvort hatursglæpunum sjálfum hafi fjölgað jafn ört og tilkynningum um þá til lögreglu.

Karlmenn 58 prósent brotaþola

„Aukningin getur endurspeglað raunverulega fjölgun hatursglæpa, meiri virkni við að tilkynna um afbrot en áður eða nákvæmari greiningu á hvata hatursglæpa,“ segir Rauta í tilkynningu frá skólanum og bætir því við að fyrirliggjandi gögn gæfu ekki skýr svör um hvert þessara atriði vægi þar þyngst.

Karlmenn voru 58 prósent brotaþola, konur 42 og aldurshópurinn fimmtán til 24 ára algengastur meðal þeirra sem misgert var við. Þá þekktu tæp 40 prósent brotaþola grunaðan geranda og komu 22 prósent allra tilkynninga frá höfuðborginni Helsinki, en í kjölfarið fylgdu Vantaa, Espoo, Turku og Tampere.

Helsinki Times

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅