Geta keypt húsin sín aftur og skilað þeim
Grindvíkingum mun bjóðast að kaupa fasteignir í bænum til baka á sama verði og fasteignafélagið Þórkatla greiddi fyrir þær í kjölfar eldsumbrotanna á Reykjanesskaga.
Kaupendur fá allt að þriggja ára skilarétt og geta á þeim tíma skilað eigninni án skilyrða og fengið upphaflega kaupsamningsgreiðslu endurgreidda.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri endurkaupaáætlun Þórkötlu sem kynnt hefur verið. Stefnt er að því að fyrstu kaupsamningarnir verði undirritaðir í byrjun næsta árs og að afhending fasteigna til fyrri eigenda geti þá hafist.
Í tilkynningu segir að áætlunin sé framhald þeirra björgunaraðgerða sem félagið hefur unnið að frá stofnun þess í mars 2024.
Skilaréttur til þriggja ára
Áætlunin felur í sér þrjár leiðir fyrir Grindvíkinga sem vilja snúa aftur til bæjarins. Þeir geta keypt fasteignir með svokallaðri kaupleigu, tekið frá eign og beðið átektar eða leigt íbúðir í fjölbýlishúsum á markaðskjörum.
Söluverð fasteigna verður það sama og Þórkatla greiddi fyrir þær á sínum tíma, í krónum talið.
Endurkaupin byggjast á fyrirkomulagi sem svipar til leigu með kauprétti. Kaupendur greiða upphafsgreiðslu og síðan mánaðarlegar leigugreiðslur sem koma að stórum hluta til lækkunar á kaupverði eignarinnar.
Þórkatla mun jafnframt bjóða fjármögnun á hagkvæmum kjörum í allt að þrjú ár, en með kaupsamningi færist ábyrgð eiganda yfir á kaupandann.
Til að draga úr fjárhagslegri áhættu þeirra sem vilja flytja aftur til Grindavíkur verður boðið upp á sérstakan skilarétt í allt að þrjú ár. Á þeim tíma geta kaupendur skilað eigninni án skilyrða og fengið upphaflega kaupsamningsgreiðslu endurgreidda.
Á árinu 2027 verður jafnframt boðið upp á svokallaða mýkri aðlögun að búsetu í bænum. Hún felur meðal annars í sér að hægt verður að skipta upphafsgreiðslunni niður, nýta kaupleigulaust tímabil og greiða lægri kaupleigu.
Verði ekki fyrir þrýstingi
Í tilkynningunni segir að Þórkatla leggi áherslu á að Grindvíkingar verði ekki fyrir þrýstingi um að taka ákvörðun um endurkaup fyrr en þeir telja sig tilbúna til þess.
Því verður einnig boðið upp á leið sem nefnist „frátekin eign“ og gildir út árið 2027. Henni er ætlað að veita þeim sem vilja bíða með ákvörðun um endurkomu til bæjarins aukið svigrúm.
Þá verður Grindvíkingum boðið að leigja íbúðir í fjölbýlishúsum á markaðskjörum.
Réttur til kaupa samkvæmt áætluninni nær til þeirra sem seldu Þórkötlu íbúðarhúsnæði sitt, auk þeirra sem áttu lögheimili í Grindavík og höfðu náð 18 ára aldri þann 10. nóvember 2023.
Þannig verður ekki eingöngu horft til fyrri fasteignaeigenda heldur einnig þeirra sem voru á leigumarkaði eða bjuggu við önnur búsetuúrræði áður en bærinn var rýmdur.
Grindvíkingum verður jafnframt gefinn kostur á að kaupa annað húsnæði en það sem þeir áttu áður, kjósi þeir það.
Kynnt í kjölfar nýs áhættumats
Endurkaupaáætlunin er kynnt í kjölfar nýs áhættumats fyrir Grindavík sem birt var í haust. Samkvæmt niðurstöðum þess er áhætta vegna aukinnar viðveru og búsetu í bænum talin ásættanleg, að teknu tilliti til þeirra mótvægisaðgerða sem gripið hefur verið til.
Stefnt er að því að fyrsti áfangi endurkaupa hefjist í byrjun árs 2027 og verði þá sérstaklega ætlaður Grindvíkingum.
Í öðrum áfanga, sem fyrirhugaður er síðar á árinu 2027 eða í byrjun árs 2028, verður opnað fyrir sölu fasteigna til annarra en Grindvíkinga.
Þórkatla hefur þegar opnað sérstakt vefsvæði þar sem fyrrverandi eigendur geta skráð sig inn og nálgast upplýsingar um eignir sínar.
Á vefnum verða jafnframt upplýsingar um fasteignir félagsins og skilmála endurkaupa. Síðar verður hægt að sækja um kaup og undirrita kaupsamninga rafrænt.
Forsætisráðuneytið og Þórkatla hafa boðað Grindvíkinga til kynningarfundar í Gjánni í Grindavík miðvikudaginn 11. nóvember klukkan 17.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗