Hluthafar í mál við Huang og Nvidia
Hluthafar hafa höfðað hópmálsókn gegn Jensen Huang, forstjóra Nvidia, og fyrirtækinu. Þeir saka Huang og Nvidia um að hafa villt um fyrir sér vegna ástarsambands hans við konu sem er sökuð um að hafa komið upplýsingum til kínverskra stjórnvalda.
Bandaríska lögmannsstofan Rosen Law Firm greindi frá málshöfðuninni í dag. Í stefnunni er því haldið fram að Huang og Nvidia hafi vanrækt að upplýsa hluthafa um tengsl hans við konuna.
New York Times greindi frá því í síðasta mánuði að Huang, sem er fæddur í Taívan, hefði stofnað til náins sambands við Alice Huang, kínverskan stjórnanda sem tengist gagnaversfyrirtækinu Megaspeed í Singapúr. Hún er ekki skyld hinum 63 ára gamla forstjóra Nvidia.
Hlutabréfaverð lækkaði eftir að rannsókn hófst
Verð á hlutabréfum Nvidia lækkaði verulega eftir að stjórn fyrirtækisins hóf rannsókn á fréttum um að erlend leyniþjónusta hefði reynt að afla upplýsinga með því að komast í samband við Huang. Kínversk stjórnvöld hafa hafnað ásökunum um aðild að málinu.
Kína og Bandaríkin keppa um yfirburði á sviði tækni og takmarka bandarísk stjórnvöld útflutning fullkomnustu tölvukubbanna til Kína.
Nvidia er meðal verðmætustu fyrirtækja heims og í fararbroddi í framleiðslu tölvukubba sem notaðir eru til að þjálfa og keyra gervigreindarlíkön.
Segja hlutabréfaverðið hafa verið blásið upp
Stefnan var lögð fram við alríkisdómstól í Kaliforníu í gær. Þar segir að Huang og Nvidia hafi villt um fyrir hluthöfum um áhyggjur af þjóðaröryggi sem tengdust ástarsambandinu. Villandi yfirlýsingar þeirra hafi orðið til þess að verð á hlutabréfum Nvidia var óeðlilega hátt.
Því er haldið fram að hluthafar hafi orðið fyrir verulegu fjárhagslegu tjóni vegna háttsemi og vanrækslu stefndu og mikils verðfalls á hlutabréfum fyrirtækisins.
Viðurkenndi framhjáhald
Huang viðurkenndi í skilaboðum til starfsmanna Nvidia, sem birt voru í fyrradag, að hann hefði verið eiginkonu sinni ótrúr.
„Hegðun mín særði hana og börnin okkar. Það er engin afsökun fyrir því sem ég gerði. Mér þykir þetta ákaflega leitt,“ sagði hann.
Huang er einn af lykilmönnunum í uppgangi gervigreindar og náinn, óformlegur ráðgjafi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Trump hefur ítrekað lagst gegn aukinni reglusetningu í greininni til að koma í veg fyrir að Kína nái yfirhöndinni.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗