Bláa lónið yrði níunda verðmætasta skráða félagið

Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins.

Miðað við lágmarksútboðsgengi Bláa lónsins í hlutafjárútboðinu sem hófst í dag verður markaðsvirði félagsins, eftir kaupin á Arctic adventures, samtals um 123 milljarðar. Þar með yrði félagið níunda verðmætasta félagið sem skráð er á markað hér á landi, rétt fyrir neðan Ísfélagið og Festi, en nokkuð fyrir ofan Festi.

Lágmarksútboðsgengi Bláa lónsins samkvæmt útboðinu er 95 krónur á hlut. Samtals verða 150 milljón nýir hlutir í boði. Til viðbótar verða nýir hlutir gefnir út til núverandi hluthafa Arctic adventures vegna kaupa Bláa lónsins á því félagi og 25 milljónir hlutir vegna frekari kaupa á hlutum í hlutdeildarfélögum.

Samtals verða því hlutar í Bláa lóninu 1.296 milljónir og eru þeir 150 milljón hlutir sem gefnir verða út og seldir í hlutafjárútboðinu 11,57% í sameinuðu félagi. Heildarmarkaðsverðmæti Bláa lónsins miðað við þetta verður því 123,1 milljarður.

JBT Marel langstærsta félagið

JBT Marel er langstærsta skráða félag á Íslandi, en markaðsverð þess miðað við gengi bréfa þess á ellefta tímanum í dag er um 810 milljarðar.

Arion banki og Íslandsbanki koma þar næstir, báðir með rétt yfir 230 milljarða markaðsverðmæti. Markaðsverðmæti Síldarvinnslunnar hefur aukist um 7,83% í dag og nú markaðsverðmæti félagsins næstum því jafn mikið og bankanna, eða 229 miljarðar.

Alvotech er metið á 198 milljarða, Brim á 179 milljarða og Ísfélagið á 130 milljarða eftir 6,71% hækkun í dag. Markaðsverð Haga er 129 milljarðar, Festi er metið á 94 milljarða og Amaroq á 79 milljarða. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅