Fjögur ungmenni létust í skelfilegu bílslysi

Fjögur ungmenni, á aldrinum 16 til 19 ára, létust í hörmulegu umferðarslysi í Þýskalandi seint í gærkvöldi þegar Audi-bifreið þeirra hafnaði á tré. Bíllinn gjöreyðilagðist við áreksturinn og lögregla telur að honum hafi verið ekið langt yfir leyfilegum hámarkshraða.

Slysið varð í þorpinu Weslarn, skammt frá Bad Sassendorf í sambandslandinu Norðurrín-Vestfalíu. Þýski fjölmiðillinn Bild greinir frá málinu.

Neyðarkall barst slökkviliði um klukkan 23:30 í gærkvöldi og þegar björgunarsveitir komu á vettvang blasti við þeim skelfileg sjón. Bifreiðin var gjörónýt og lá í vegkantinum eftir að henni hafði verið ekið á tré.

Bráðalæknir sem býr skammt frá slysstaðnum varð fyrstur til að veita aðstoð. Fljótlega varð þó ljóst að lítið var hægt að gera.

„Hún komst að því að fjórir einstaklingar væru í bílnum og að líklega væru þeir allir látnir,“ sagði Axel Kipp, fulltrúi slökkviliðsins í Bad Sassendorf, í samtali við þýska ríkisútvarpið WDR.

Ökumaður bifreiðarinnar var 18 ára piltur og í framsætinu við hlið hans sat 19 ára piltur. Báðir voru frá bænum Attendorn. Í aftursætinu voru 16 ára piltur og 16 ára stúlka. Öll fjögur létust í slysinu.

Lögregla rannsakar nú tildrög slyssins en grunur beinist einkum að of miklum hraða. Hámarkshraði á slysstaðnum er 50 kílómetrar á klukkustund.

Samkvæmt tölum þýsku hagstofunnar létust 140 börn og ungmenni undir 18 ára aldri í umferðarslysum í Þýskalandi á síðasta ári. Þar af voru 66 á aldrinum 15 til 17 ára.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅