„Langstærsta opnun á íslenskri bíómynd í nokkur ár“

Strákarnir í strákabandinu Iceguys halda áfram að slá í gegn á hvíta tjaldinu. Ljósmynd/Iceguys

Íslenska kvikmyndin Iceguys the movie hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá landanum en alls hafa rúmlega 19.000 manns séð myndina um íslensku strákahljómsveitina.

Kvikmyndin var forsýnd fimmtudaginn 29. október og sáu 6.591 bíógestur myndina á opnunarhelginni.

Rúmlega átta þúsund manns sáu kvikmyndina frá fimmtudegi til sunnudags um síðustu helgi sem er meiri aðsókn en á opnunarhelginni. Uppselt var á fjölda sýninga víða um land.

Ólafía Hrönn Jónsdóttir fer á kostum í Iceguys.

Ólafía Hrönn Jónsdóttir fer á kostum í Iceguys. Ljósmynd/Iceguys

Í skýjunum með viðtökurnar

„Við erum í skýjunum með viðtökurnar,“ sagði Hannes Þór Halldórsson, einn af leikstjórum og framleiðendum myndarinnar í fréttatilkynningu framleiðslufyrirtækisins Atlavíkur. 

„Það er ótrúlega gaman að sjá fólk flykkjast í bíó og skemmta sér saman,“ bætti Hannes Þór Halldórsson einnig við.

Alfreð Ásberg hjá Sambíóunum tekur í sama streng og segir þetta stærstu opnun íslenskrar myndar í nokkur ár.

Iceguys.

Iceguys. Ljósmynd/Iceguys

Allt of lítið af íslenskum grínmyndum

„Það er frábært að fá íslenska grínmynd í bíó enda er allt of lítið af íslenskum grínmyndum í boði og viðtökurnar sýna að það er eftirspurn eftir þeim,“ segir Alfreð í fréttatilkynningu Atlavíkur.

„Þetta er langstærsta opnun á íslenskri bíómynd í nokkur ár. Myndin hefur líka fengið frábæra dóma hjá gagnrýnendum og Morgunblaðið talaði meðal annars um hörkuskemmtilega mynd með góðum húmor, hasar og grípandi tónlist,“ bætti Alfreð við.

Rúrik Gíslason sýnir nýja hlið á sér í Iceguys.

Rúrik Gíslason sýnir nýja hlið á sér í Iceguys. Ljósmynd/Iceguys

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅