Ellefu létust í árekstrum á hraðbraut

Aðkoman var skelfileg.

Aðkoman var skelfileg. AFP

Ellefu létust og 48 slösuðust í fjöldaárekstrum á báðum akbrautum hraðbrautar í suðausturhluta Búlgaríu í dag. Slysin urðu í þéttri þoku nærri borginni Jambol og er talið að um 50 ökutæki hafi lent í þeim.

Hraðbrautin tengir höfuðborgina Sófíu við Burgas við Svartahaf. Georgi Tsjalakov, héraðsstjóri í Jambol, sagði við ríkisfréttastofuna BTA að bæði fólksbílar og vörubílar hefðu lent í árekstrunum.

Á myndum frá vettvangi mátti sjá ökutæki sem höfðu oltið og flök fólksbíla og vörubíla sem höfðu skollið saman. Sum ökutækin voru brunnin.

„Eins og staðan er núna eru ellefu látnir og 48 slasaðir,“ sagði Rumen Radev forsætisráðherra við fréttamenn.

Aflýsti öðrum viðburðum

Radev átti fund með Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem er í heimsókn í Búlgaríu. Hann aflýsti öðrum opinberum viðburðum á dagskrá sinni síðar í dag.

Verið er að flytja slasaða á sjúkrahús í nálægum borgum. Stjórnvöld hafa jafnframt sent tvær flugvélar með sjúkrabörum og læknateymum til aðstoðar.

Á myndum frá vettvangi mátti sjá ökutæki sem höfðu oltið og flök fólksbíla og vörubíla sem höfðu skollið saman. Sum ökutækin voru brunnin. AFP

Flest dauðsföll í umferðinni miðað við íbúafjölda

Á síðasta ári létust 71 í umferðinni í Búlgaríu á hverja milljón íbúa. Það var hæsta hlutfallið innan ESB samkvæmt tölum framkvæmdastjórnar sambandsins.

Fólk sem hefur lent í umferðarslysum í landinu kenna glæfraakstri, lélegu viðhaldi vega og óskilvirku réttarkerfi um háa dánartíðni í umferðinni.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅