„Risastór sigur fyrir Pútín“

Vladimír Pútín Rússlandsforseti.

Vladimír Pútín Rússlandsforseti. AFP/Mikhail Metzel

Rússneski ólympíumeistarinn Natalía Terentjeva hefur fengið hlutlausa stöðu hjá Alþjóðaskíða- og snjóbrettasambandinu, sem gerir henni mögulega kleift að snúa aftur í alþjóðlega skíðagöngu.

VG í Noregi greinir frá. Terentjeva, sem áður hét Nepryaeva, vann heimsbikarinn, Tour de Ski og ólympíugull í boðgöngu árið 2022.

Hún er í hópi 35 rússneskra skíðagöngumanna sem hafa fengið samþykki, þótt kröfur um keppnisrétt og vegabréfsáritanir gildi enn.

„Þetta er risastór sigur fyrir Vladímír Pútín,“ sagði Birger Løfaldli, álitsgjafi Adresseavisen, við VG og gagnrýndi endurkomuna á meðan stríð Rússlands í Úkraínu heldur áfram.

Aleksandr Bolshunov, ein skærasta stjarna Rússa í greininni, hefur enn ekki fengið samþykki. Þjálfarinn Júrí Borodavko sagði við Sport24 að hann hefði hætt í rússneska hernum til að auka líkurnar á endurkomu.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅