Eftirlýstur maður dvaldi árum saman á Íslandi

Manninum er gefið að sök að hafa nauðgað konu og beitt hana ítrekuðu ofbeldi á Írlandi í maí 2004. Samkvæmt greinargerðinni geta brotin varðað ævilöngu fangelsi samkvæmt írskum lögum. Ljósmynd/Colourbox

Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhald yfir manni sem írsk yfirvöld óska eftir að fá afhentan vegna nauðgunarmáls frá árinu 2004.

Samkvæmt greinargerð lögreglu hefur maðurinn um árabil dvalið og starfað hér á landi á grundvelli falsaðs vegabréfs.

Maðurinn neitar sakargiftum og mótmælir afhendingu til Írlands. Honum hefur verið gert að sæta gæsluvarðhaldi til 1. desember á meðan beiðni írskra yfirvalda um afhendingu hans er til meðferðar.

Landsréttur staðfesti 5. nóvember úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 3. nóvember með vísan til forsendna hans. Maðurinn hafði krafist þess að úrskurðurinn yrði felldur úr gildi, til vara að hann sætti farbanni í stað gæsluvarðhalds og að því frágengnu að gæsluvarðhaldinu yrði markaður skemmri tími.

Mætti ekki fyrir dóm á Írlandi

Í greinargerð lögreglu, sem rakin er í úrskurði héraðsdóms, kemur fram að íslenskum yfirvöldum hafi borist evrópsk handtökuskipun frá Írlandi sem er dagsett 24. september 2014. Hún byggist á írskri handtökuskipun frá desember 2007.

Manninum er gefið að sök að hafa nauðgað konu og beitt hana ítrekuðu ofbeldi á Írlandi í maí 2004. Samkvæmt greinargerðinni geta brotin varðað ævilöngu fangelsi samkvæmt írskum lögum.

Í handtökuskipuninni kemur fram að maðurinn hafi yfirgefið Írland skömmu eftir að honum var sleppt úr haldi lögreglu árið 2004. Hann hafi verið handtekinn á ný árið 2007 og ákærður, en látinn laus gegn tryggingu og tilteknum skilyrðum, meðal annars um afhendingu ferðaskilríkja.

Hann hafi ekki mætt fyrir dóm í október það ár. Tilraunir írskra yfirvalda til að hafa uppi á honum báru ekki árangur. Yfirvöld þar hafa staðfest að handtökuskipunin sé enn í gildi og óska eftir afhendingu hans.

Falsað vegabréf samkvæmt rannsókn lögreglu

Samkvæmt greinargerð lögreglu staðfestu andlitssamanburður og fingraför að maðurinn væri sá sem lýst væri eftir. Þá lægi fyrir staðfesting erlendra yfirvalda á því að hann hefði breytt nafni sínu árið 2012.

Skilríkjarannsókn lögreglu hafi jafnframt leitt í ljós að vegabréf sem hann hafði í fórum sínum væri falsað. Á grundvelli þess hafi hann um árabil dvalið og starfað hér sem EES-borgari án þess að eiga rétt á þeirri stöðu.

Við skýrslutöku kannaðist maðurinn við sakamálið á Írlandi og staðfesti að upplýsingarnar í handtökuskipuninni ættu við hann. Hann neitaði hins vegar sakargiftum og kvaðst hafa breytt nafni sínu vegna erfðamála.

Talin hætta á að hann kæmi sér undan

Í niðurstöðu héraðsdóms kemur fram að maðurinn hafi sagst fyrst hafa komið til Íslands árið 2006 og dvalið hér frá árinu 2017. Hann ætti hér ekki fjölskyldu og hefði lítil persónuleg tengsl við landið.

Dómurinn taldi hættu á að maðurinn reyndi að koma sér undan afhendingu og saksókn. Við matið var meðal annars litið til takmarkaðra tengsla hans við Ísland, þess að hann hefði dvalið hér árum saman undir öðru nafni, alvarleika brotanna sem honum eru gefin að sök og þungrar refsingar sem hann kynni að eiga yfir höfði sér.

Gæsluvarðhald var talið nauðsynlegt til að tryggja nærveru hans þar til leyst hefði verið úr afhendingarmálinu. Vægari úrræði voru ekki talin nægja.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅