Argentína vegur þyngst í lakri afkomu

Bás Iceland Seafood á sjávarútvegssýningu árið 2023.

Bás Iceland Seafood á sjávarútvegssýningu árið 2023. mbl.is/Gunnlaugur

Iceland Seafood hefur lækkað afkomuspá sína fyrir árið 2026 um nærri fjórðung.

„Endurskoðuð afkomuspá er að leiðréttur hagnaður fyrir skatta verði á bilinu 8,5–10,5 milljónir evra, sem er sambærilegt við afkomu ársins 2025, en lægri samanborið við áður birta afkomuspá upp á 11,5–13,5 milljónir evra,“ segir í tilkynningu til kauphallar.

Endurskoðuð afkomuspá er einkum sögð skýrast af lakari afkomu en vænst hafi verið í starfsemi samstæðunnar í Argentínu.

Í krónum talið samsvarar endurskoðuð afkomuspá tæplega 1,2 til ríflega 1,4 milljarða hagnaði fyrir skatta á árinu, í staðinn fyrir tæplega 1,6 til 1,9 milljarða króna.

Bilaður togari telur

„Rekstur frystitogara varð fyrir verulegum áhrifum af bilunum sem leiddu til minni afla og lakari afkomu en markmið gerðu ráð fyrir. Þetta ásamt lakari afkomu landvinnslunnar í Argentínu er meginástæða lækkunar afkomuspár samstæðunnar,“ segir þar.

Þá hafi líka áhrif lakari afkoma starfsemi félagsins í Frakklandi vegna tapaðrar viðskiptakröfu að fjárhæð um 0,5 milljónir evra, eða sem svarar um 69 milljónum íslenskra króna.

Fram kemur að stjórnendur félagsins hafi gripið til ráðstafana sem miði að því að draga úr hættu á að sambærileg rekstrarvandamál hafi áhrif á afkomuna á næsta ári.

Þá haldi aðrir hlutar starfsemi samstæðunnar áfram að skila góðri afkomu.

Sala Ahumados Domínguez ekki frágengin

„Fjórði ársfjórðungur er mikilvægastur í starfsemi samstæðunnar og því ríkir enn nokkur óvissa um afkomu ársins. Afkoma fjórða ársfjórðungs, þar á meðal upphaf komandi Rawson-vertíðar í Argentínu, mun ráða miklu um hvar innan hins endurskoðaða afkomubils niðurstaða ársins verður.“

Jafnframt segir félagið að möguleg sala á dótturfyrirtækinu Ahumados Domínguez á Spáni sé ekki frágengin og óljóst hvert söluverðið verði ef samningar nást.

„Endurskoðuð afkomuspá tekur ekki tillit til mögulegra áhrifa af sölu Ahumados Domínguez.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅