Helgi Sæmundur safnar neyðarbirgðum

Helgi Sæmundur hefur birgt sig upp af matvælum, vatni og rafhlöðum til að vera viðbúinn ef á þarf að halda. Samsett mynd/TikTok

Tónlistarmaðurinn Helgi Sæmundur Guðmundsson, annar helmingur tvíeykisins Úlfs Úlfs, hefur útbúið neyðarkassa fyrir heimilið.

Í myndbandi á TikTok sýnir hann birgðirnar og raðar matvælum og öðrum nauðsynjum vandlega í tvo plastkassa.

Þar kennir ýmissa grasa. Meðal þess sem Helgi hefur keypt eru hrísgrjón, hafragrautur, túnfiskur í dós, baunir, Spam-skinka, pasta og kex. Þá hefur hann einnig birgt sig upp af vatni í flöskum og rafhlöðum.

Nauðsynjar fyrir að minnsta kosti þrjá daga

Undirbúningur Helga er í takt við nýjar leiðbeiningar stjórnvalda um viðbúnað heimila.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gaf út bæklinginn Verum viðbúin hinn 3. nóvember síðastliðinn. Honum er ætlað að hjálpa almenningi að búa sig undir aðstæður sem geta raskað daglegu lífi, svo sem náttúruhamfarir, rafmagnsleysi og fjarskiptatruflanir.

Í bæklingnum eru landsmenn hvattir til að eiga nægar birgðir af mat, vatni og öðrum nauðsynjum til að geta séð fyrir grunnþörfum sínum í að minnsta kosti þrjá daga. Þá er meðal annars mælt með því að hafa vasaljós, rafhlöður, hleðslubanka og útvarp sem gengur fyrir rafhlöðum tiltækt á heimilinu.

Magn birgða þarf að miðast við fjölda heimilisfólks og þarfir þess. Jafnframt er lögð áhersla á að nauðsynjarnar séu aðgengilegar og yfirfarnar reglulega.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅