Síldarvinnslan kaupir nýjan frystitogara

Nýr togari sem Síldarvinnslan í Neskaupstað kaupir í Tyrklandi kemur í stað Blængs NK. Hér má sjá nýlega löndun úr Blæng í Neskaupstað. Ljósmynd/SVN/Hákon Ernuson

Síldarvinnslan hefur fengið samþykkt kauptilboð í nýsmíðaðan frystitogara, sem er í eigu skipasmíðastöðvarinnar Tersan Shipyard í Tyrklandi.

„Skipið er 90 metra langt og 18 metra breitt, með 6.100 kw aðalvél,“ að því er fram kemur í tilkynningu félagsins um kaupin í kerfi Kauphallarinnar.

Fram kemur að skipið sé öflugur vinnslutogari með 2.700 rúmmetra frystilest og frystigetu sem nemi um 250 tonnum á sólarhring.

Um borð er sögð fjölbreytt vinnsla ásamt fiskimjöls- og lýsisverksmiðju sem geri kleift að nýta hráefni vel um borð.

Mjöllestin er 600 rúmmetra stór.

„Fyrirhuguð kaup eru liður í endurnýjun skipaflota Síldarvinnslunnar hf. og er gert ráð fyrir að skipið leysi frystitogarann Blæng af hólmi.“

Þá segir að unnið sé að frágangi endanlegs kaupsamnings, meðal annars hvað snertir afhendingu og tæknileg atriði.

Nánar verði upplýst um viðskiptin þegar endanlegur kaupsamningur hafi verið undirritaður.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅