Betur fór en á horfðist – var borin af velli

Karen Tinna Demian í leiknum gegn Fram.

Karen Tinna Demian í leiknum gegn Fram. mbl.is/Eyþór

Handknattleikskonan Karen Tinna Demian, fyrirliði ÍR, var borin af velli þegar hún fékk þungt högg í 29:22-tapi gegn Fram síðastliðið föstudagskvöld.

Karen fékk aðhlynningu í nokkrar mínútur áður en hún var borin af velli en betur fór en á horfðist.

„Ég hef það bara ágætt. Ég fékk mikinn slink á hálsinn sem leiddi til þess að ég festist alveg og gat lítið hreyft mig,“ sagði Karen í samtali við mbl.is og bætti svo við góðum fréttum:

„Ég er öll að koma til og þetta fór betur en á horfðist. Ég bind vonir við að ná næsta leik,“ sagði Karen en ÍR mætir Íslandsmeisturum Vals á útivelli annað kvöld.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅