Grindvíkingar geta keypt húsin sín aftur á sama verði – Fá þriggja ára skilarétt

Grindvíkingum mun frá og með byrjun næsta árs bjóðast að kaupa aftur fasteignir sem þeir seldu Fasteignafélaginu Þórkötlu í kjölfar náttúruhamfaranna í Grindavík. Kaupverðið verður það sama og Þórkatla greiddi upphaflega fyrir eignirnar og kaupendur fá sérstakan skilarétt í allt að þrjú ár.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri endurkaupaáætlun Þórkötlu sem kynnt hefur verið. Áætluninni er ætlað að auðvelda Grindvíkingum að snúa aftur heim þrátt fyrir þá óvissu sem enn ríkir vegna eldsumbrota á Reykjanesskaga.

Þórkatla hefur frá því í apríl 2024 keypt 961 fasteign í Grindavík fyrir samtals 72,7 milljarða króna. Nú stendur til að hefja sölu eignanna að nýju, en fyrst verður Grindvíkingum boðið að kaupa þær.

Geta skilað húsinu ef þeim snýst hugur

Samkvæmt áætluninni verður Grindvíkingum boðið upp á sérstakt kaupleigufyrirkomulag. Kaupendur greiða upphafsgreiðslu sem Þórkatla segir að verði lág og síðan mánaðarlegar greiðslur sem að stórum hluta ganga upp í kaupverð eignarinnar.

Þórkatla mun jafnframt bjóða fjármögnun á hagkvæmum kjörum í allt að þrjú ár.

Það sem vekur sérstaka athygli er að kaupendur munu geta skilað fasteigninni aftur til Þórkötlu innan þriggja ára, án sérstakra skilyrða, og fengið upphaflegu kaupsamningsgreiðsluna endurgreidda.

Þannig er ætlunin að draga úr fjárhagslegri áhættu þeirra sem vilja snúa aftur til Grindavíkur en óttast að aðstæður í bænum kunni að breytast.

Á árinu 2027 verður jafnframt boðið upp á sérstaka aðlögun að búsetu í bænum, meðal annars með því að skipta upp upphafsgreiðslunni, bjóða tímabil án kaupleigugreiðslna og lægri kaupleigu.

Enginn þrýstingur á að taka ákvörðun

Þórkatla leggur áherslu á að Grindvíkingar þurfi ekki að taka ákvörðun um framtíð sína í flýti.

Þeim sem vilja bíða og sjá hvernig aðstæður þróast verður boðið að taka frá eign út árið 2027.

Þriðji valkosturinn felst í því að leigja íbúðir í fjölbýlishúsum á markaðskjörum.

Kauprétturinn verður ekki eingöngu bundinn við þá sem seldu Þórkötlu fasteignir sínar. Þeir sem áttu lögheimili í Grindavík og höfðu náð 18 ára aldri þann 10. nóvember 2023 munu einnig geta keypt eignir úr safni félagsins.

Þannig verður meðal annars komið til móts við Grindvíkinga sem voru á leigumarkaði áður en bærinn var rýmdur.

Aðrir fá að kaupa síðar

Fyrsti áfangi endurkaupaáætlunarinnar á að hefjast í byrjun árs 2027 og er stefnt að því að fyrstu kaupsamningarnir verði undirritaðir þá.

Í öðrum áfanga, síðar á árinu 2027 eða í byrjun árs 2028, verður opnað fyrir sölu fasteigna til annarra en Grindvíkinga.

Áætlunin er kynnt í kjölfar nýs áhættumats fyrir Grindavík sem birt var í haust. Samkvæmt því telst áhætta vegna aukinnar viðveru og búsetu í bænum ásættanleg, að teknu tilliti til þeirra mótvægisaðgerða sem gripið hefur verið til.

Kynningarfundur á morgun

Forsætisráðuneytið og Þórkatla hafa boðað Grindvíkinga til kynningarfundar í Gjánni í Grindavík á morgun, miðvikudaginn 11. nóvember, klukkan 17. Þar verður áætlunin kynnt og spurningum íbúa svarað. Fundinum verður einnig streymt.

Frekari kynningarfundir verða haldnir 17. og 19. nóvember.

Grindvíkingar geta þegar nálgast upplýsingar um fyrri eignir sínar á vef Þórkötlu, en síðar verður hægt að sækja um kaup og undirrita samninga rafrænt.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅