Fallið frá 2,8 milljarða auglýsingaþaki

Frumvarpið miðar að því að draga úr umsvifum RÚV á fjölmiðlamarkaði og er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla. Það tengist jafnframt áformum um að auka fjárframlög til einkarekinna fjölmiðla. mbl.is/Eyþór

Fallið hefur verið frá áformum um að setja 2,8 milljarða króna hámark á auglýsingatekjur Ríkisútvarpsins. Áfram er lagt til að framlög til RÚV af útvarpsgjaldi verði skert um fjárhæð sem nemur tíu prósentum af árlegum auglýsingatekjum félagsins. Fénu verði varið til aukins stuðnings við einkarekna fjölmiðla.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins um frumvarp menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra til breytinga á lögum um Ríkisútvarpið.

Frumvarpið tók breytingum eftir samráð, meðal annars vegna athugasemda um að þak á auglýsingatekjur gæti leitt til undirverðlagningar auglýsinga á íslenskum markaði.

Ríkisstjórnin samþykkti frumvarpið á fundi sínum í síðustu viku og hefur það verið lagt fram á Alþingi. Ráðherra mun mæla fyrir því á morgun. Stefnt er að því að það verði að lögum í janúar 2027.

Framlög skert með hliðsjón af auglýsingatekjum

Frumvarpið miðar að því að draga úr umsvifum RÚV á fjölmiðlamarkaði og er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla. Það tengist jafnframt áformum um að auka fjárframlög til einkarekinna fjölmiðla.

Samkvæmt frumvarpinu verði árleg framlög til RÚV af útvarpsgjaldi lækkuð um fjárhæð sem samsvarar tíu prósentum af auglýsingatekjum félagsins. Þeirri fjárhæð verði síðan varið til stuðnings einkareknum fjölmiðlum.

Þá er lagt til að felldar verði brott kvaðir um lágmarksfjölda útvarps- og sjónvarpsstöðva sem RÚV er skylt að dreifa um allt land.

Nýjum þjónustusamningi flýtt

Sex umsagnir bárust um frumvarpsdrögin þegar þau voru til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda frá 25. september til 12. október. Í kjölfarið var fallið frá fyrirhuguðu hámarki auglýsingatekna.

Samhliða þeirri breytingu hefur verið ákveðið að flýta gerð nýs þjónustusamnings ráðherra við RÚV. Hann á að taka gildi um mitt ár 2027 í stað ársbyrjunar 2028.

Í samningnum verða lagðar auknar skyldur á RÚV um samstarf við einkarekna fjölmiðla, meðal annars um samnýtingu tækjabúnaðar. Í aðgerðaáætlun stjórnvalda er lögð áhersla á stuðningshlutverk RÚV við aðra fjölmiðla og að aukið samstarf styrki íslenska fjölmiðla í samkeppni við erlenda tæknirisa.

Meiri skerðing leiddi til frekari samdráttar

Ekki var fallist á tillögur flestra umsagnaraðila um að hækka hlutfall skerðingarinnar. Samkvæmt tilkynningunni sýnir greining á fjárhagsáhrifum frumvarpsins að fyrirhuguð skerðing hafi neikvæð áhrif á sjóðstreymi RÚV, að teknu tilliti til mótvægisaðgerðar vegna lífeyrisskuldbindinga félagsins.

RÚV vinnur þegar að fækkun stöðugilda á grundvelli fyrirliggjandi tekjuáætlunar. Frekari tekjuskerðing myndi, samkvæmt tilkynningunni, leiða til enn meiri fækkunar stöðugilda, samdráttar í dagskrárframboði eða hvort tveggja.

Stjórnvöld segja markmiðið að styrkja innlent fjölmiðlaumhverfi í heild án þess að skerða fjölmiðlaþjónustu RÚV í almannaþágu. Breytingunum sé ætlað að tryggja að stuðningurinn skili sér til annarra íslenskra fjölmiðla og koma í veg fyrir að meira auglýsingafé renni úr landi. Jafnframt verði RÚV áfram aðgengilegur auglýsingavettvangur.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅