Þurfum að tala máli náttúrunnar
Magnús Hallur Jónsson á að baki um 20 ára feril sem landvörður; fyrst á Þingvöllum og svo á hálendinu. mbl.is/Sigurður Bogi
„Landverðir þurfa að hafa hugsjónir og vera tilbúnir að tala máli íslenskrar náttúru,“ segir Magnús Hallur Jónsson formaður Landvarðafélags Íslands.
„Frásögn og leiðbeiningar til ferðamanna eru stór hluti af starfinu, þá meðal annars að fá fólk til þess að horfa á náttúruna og söguna frá nýjum sjónarhóli. Þetta er kallað náttúrutúlkun: landvörður á hverjum stað segir frá staðháttum af ástríðu sem vonandi smitast til þeirra sem hlýða á. Hjalandi lækur, blóm í brekku, óvenjulegar bergmyndanir og fjallasýn; þetta allt getur verið einstaklega heillandi.“
Veita ferðamönnum svör og þjónustu
Fjölmenni var á Þingvöllum sl. laugardag þar sem efnt var til hátíðar í tilefni af 50 ára afmæli Landvarðafélags Íslands. Þar var í fjölbreyttri dagskrá farið yfir sögu félagsins sem samofin er náttúruvernd á Íslandi. Einnig var litið til framtíðar og þeirra verkefna sem kunna að verða landvörðum falin.
Ferðamenn sem til Íslands koma á ári hverju eru nú nokkuð á þriðju milljón og því hefur fylgt aukið álag á marga staði víða um landið. Landverðir starfa á friðlýstum svæðum og í þjóðgörðum og hafa þar fjölbreyttu hlutverki að gegna, svo sem við að stýra umferð, veita ferðamönnum svör og þjónustu og fara í umhverfisbætur og bráðaaðgerðir til verndar náttúru ef þarf.
Hér eru frá vinstri talið þau Ásmundur Máni Þorsteinsson, Sólborg Birgisdóttir, Jukka Siltanem og Josephine Lieian Roloff. Hér eru þau á gestastofu Þingvalla við landakort með sjálfan Langjökul í forgrunni.
30% landsins verði friðlýst í framtíðinni
„Friðlýst svæði eru um land allt og hefur þeim fjölgað mikið á síðustu árum. Jafnframt hafa þjóðgarðar verið stækkaðir. Þessi þróun mun halda áfram, samanber skuldbindingar sem Íslendingar hafa undirgengist og kveða á um að 30% af heildarflatarmáli landsins skuli vera friðlýst árið 2030. Í dag er þetta hlutfall 20,1%,“ segir Magnús og heldur áfram:
„Þá er vert að hafa í huga að friðun og landvarsla felast meðal annars í því að gera svæði vel merkt svæði örugg og aðgengileg. Landið er líka stöðugt að breytast, meðal annars vegna hlýnunar andrúmsloftsins. Jöklar hopa, farvegir áa færast, sandfok eykst, einstaka skordýrategundir eflast og svo framvegis. Þessu þurfa landverðir að fylgjast með og bregðast við.“
Óperusöngvarinn er á vaktinni á öræfum
Um 200 manns starfa í dag við landvörslu, flestir í tímabundnum sumarstörfum hjá Náttúruverndarstofnun og þjóðgarðinum á Þingvöllum. Sumir nota sumarfríið sitt til að vera á fjöllum í alls konar brasi og áhugaverðum verkefnum. Þannig má nefna að Magnús Hallur er lærður óperusöngvari og starfar á vettvangi menningar yfir vetrartímann. Hann hefur svo síðustu tvo áratugi jafnan farið til fjalla á sumrin og lengst verið á vaktinni á hálendinu norðan Vatnajökuls, það er í Hvannalindum, Kverkfjöllum og Dreka við Dyngjufjöll – þar sem Askja er meðal þeirra svæða sem landverðirnir þarna hafa umsjón og eftirlit með
„Verkefnin sem landverðir sinna eru oft krefjandi og þarfnast þekkingar. Námskeið sem Náttúruverndarstofnun og fleiri nú í seinni tíð standa fyrir veita starfsréttindi, en hvernig að fræðslunni er staðið þarf að vera í stöðugri þróun. Þar mætti til dæmis fara dýpra ofan í lög um náttúruvernd, bæta og efla verklega þætti. Einnig undirbúa landverði til að takast á við alls kyns krefjandi og erfiðar aðstæður, hvort sem það er í flóknum samskiptum við fólk eða í líkamlega krefjandi aðstæðum. Við viljum einnig sjá að landverðir fái tækifæri til að bæta við sig áframhaldandi menntun og færni sem nýtist í starfi eins og til dæmis frekari fyrstu hjálp, frekari menntun í náttúrutúlkun, grjóthleðslu og fleiru. En fyrst og fremst þarf landvörðurinn þó að hafa ástríðuna fyrir vernd landsins – og geta sagt frá því sem fyrir augu ber frá rótum hjarta síns.“
Kári Kristjánsson fékk Grænu stikuna
Á afmælisfundi Landvarðafélags Íslands fékk Kári Kristjánsson heiðursviðurkenningu félagsins. Hann á að baki feril til áratuga við landvörslu víða um land, svo sem á ýmsum svæðum Vatnajökulsþjóðgarðs. Viðurkenningin sem Kári fékk var Gyllta stikan, heiðursgripur félagsins sem Orri Páll Jóhannsson, landvörður og fyrrverandi alþingismaður, afhenti.
„Kári er oft kallaður Landvörður Íslands. Hann er með sérstakan hæfileika til að deila undrun sinni á náttúrunni þannig að það sé eins og maður sé að upplifa hana í fyrsta sinn. Virðing hans fyrir náttúrunni er smitandi. Sem dæmi má nefna að hann gengur á gúmmítúttum því þær skilja eftir sig svo lítil spor. Því nota margir landverðir túttur frekar en harða gönguskó,“ segir Magnús Hallur og enn fremur:
„Kári er ofboðslega gjafmildur á þekkingu, visku og tíma til yngri landvarða. Hvernig við sinnum starfinu í dag er að mörgu leyti komið til vegna hans. Síðast en ekki síst er Kári óþreytandi baráttumaður í verndun náttúru Íslands og sérstaklega verndun hálendisins.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

