Fer fram á 5-6 ára fangelsi yfir Írisi Helgu

Saksóknari fer fram á 5-6 ára fangelsi.

Saksóknari fer fram á allt að fimm til sex ára fangelsi yfir Írisi Helgu Jónatansdóttur sem ákærð er fyrir umsáturseinelti, ærumeiðandi aðdróttanir, rangar sakargiftir, skjalafals og brot gegn barnaverndarlögum.

Þetta kom fram í málflutningi saksóknara í Héraðsdómi Reykjaness fyrir skemmstu.

Þá telur hann að horfa beri á nýleg nálgunarbönn sem Íris mátti sæta eftir að aðalmeðferð málsins hófst til refsiþyngingar. 

Þá er manninum sem viðurkenndi að maka saur á eigur meintra fórnarlamba gert að sæta allt að þriggja mánaða fangelsi.   

Saksóknari fór yfir rafræn gögn, meðal annars úr tölvu Írisar Helgu, og benti á fjölda tölvupóstaðganga og Facebook-reikninga sem hann sagði að hefðu verið notaðir til að fara ófögrum orðum um ýmsa einstaklinga. Alls er hún ákærð fyrir brot gegn níu einstaklingum á árunum 2022-2025.

Fór yfir leitarsögu

Saksóknari fór meðal annars yfir leitarsögu Írisar Helgu. Þar kom fram að leitað hafði verið að hugtökum á borð við „smear campaign“ (ófrægingarherferð) og „stalking“ (umsáturseinelti). Þá taldi saksóknari gögnin sýna að hún hefði notað númeraleynd.

Ákæran telur alls 68 ákæruliði. Meðal alvarlegustu sakargifta eru ásakanir um að Íris Helga hafi sakað ýmsa menn um kynferðisbrot og barnaníð á samfélagsmiðlum og öðrum vettvangi á netinu, meðal annars með TikTok-reikningum, tölvupóstum og Facebook-reikningum.

Þá er henni gefið að sök að hafa ítrekað sent hótanir og skilaboð, meðal annars um líkamsmeiðingar, íkveikju, eignaspjöll og að eitra fyrir hundi.

Einnig er hún sökuð um að hafa falsað dánartilkynningu um einn mannanna og sent hana til Morgunblaðsins, þar sem hann var ranglega sagður látinn.

Tilkynningar til barnaverndaryfirvalda

Íris Helga er jafnframt sökuð um að hafa reynt að fá aðra til að beita einn mannanna ofbeldi og fengið annan mann til að maka saur á hurðarhúna heimilis og bifreiðar fjölskyldu.

Þá er henni gefið að sök að hafa áreitt fólk við heimili þess, meðal annars með því að dreifa ærumeiðandi miðum og, samkvæmt ákæru, koma sírópi fyrir í bréfalúgu með aðstoð ungrar dóttur sinnar.

Hún er einnig sökuð um að hafa áreitt börn mannanna, meðal annars með skilaboðum, ásökunum og samskiptum við skóla og barnaverndaryfirvöld.

Meðal annars er henni gefið að sök að hafa logið því upp á barn að það hefði birt niðrandi ummæli um föður sinn á Facebook-hópnum Mæðratips. Saksóknari sagði ekkert í gögnum lögreglu styðja þá fullyrðingu.

Þá sagði saksóknari að Íris Helga hefði fylgt dóttur eins mannanna á TikTok með fjórum fölskum reikningum. Þar hefði hún sakað föður stúlkunnar um alvarleg kynferðisbrot og séð til þess að ásakanirnar bærust stúlkunni.

Einnig hefði hún sent tölvupósta til vinnuveitenda mannsins þar sem hann var sakaður um kynferðisbrot.

„Bara eitthvað að bulla“

Saksóknari taldi jafnframt sýnt fram á að Íris Helga hefði sent tilkynningar til barnaverndaryfirvalda um meinta vanrækslu manns og kærustu hans sem hún er sökuð um að hafa ítrekað áreitt. Að mati saksóknara sýndu gögn málsins að ásakanirnar hefðu verið rangar.

„Eins og annað í þessu máli þá eru sönnunargögnin yfirgnæfandi,“ sagði saksóknari. „Að auki vísa ég til þess hversu trúverðugir framburðir allra sem hafa komið fram fyrir dóminn,“ sagði hann. Varðandi framburð Írisar þá taldi hann hann vera óstöðugan, ótrúverðugan og annað í þeim dúr. „Framburður ákærðu, stenst enga skoðun,“ „Hún er gjarnan bara eitthvað að bulla,“ eru meðal ummæla saksóknara. 

Hugsaði um vökvabúskapinn

Íris Helga virtist ekki kippa sér mikið upp við málflutning saksóknara þegar hann fór yfir sakargiftirnar á hendur henni. Hún hugaði hins vegar vel að vökvabúskapnum og fékk sér Happy Hydrate á meðan málflutningurinn fór fram. Auk þess skrifaði hún eitthvað á blað af miklum móð.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅