Betur fór en á horfðist – var borin af velli
Handknattleikskonan Karen Tinna Demian, fyrirliði ÍR, var borin af velli þegar hún fékk þungt högg í 29:22-tapi gegn Fram síðastliðið föstudagskvöld.
Karen fékk aðhlynningu í nokkrar mínútur áður en hún var borin af velli en betur fór en á horfðist.
„Ég hef það bara ágætt. Ég fékk mikinn slink á hálsinn sem leiddi til þess að ég festist alveg og gat lítið hreyft mig,“ sagði Karen í samtali við mbl.is og bætti svo við góðum fréttum:
„Ég er öll að koma til og þetta fór betur en á horfðist. Ég bind vonir við að ná næsta leik,“ sagði Karen en ÍR mætir Íslandsmeisturum Vals á útivelli annað kvöld.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗