Beyond Shades opnar á Keflavíkurflugvelli

Beyond Shades er til húsa þar sem Eyesland var áður.

Beyond Shades er til húsa þar sem Eyesland var áður. Ljósmynd/Aðsend

Tísku- og fylgihlutaverslunin, Beyond Shades, hefur opnað á Keflavíkurflugvelli. Hún er staðsett þar sem gleraugnaverslunin Eyesland var áður. Ísland Duty Free rekur verslunina sem selur skargripi frá íslensku vörumerkjunum Sign og Sif Jakobs og sólgleraugu frá Prada, Maui Jim, Miu Miu.  

„Við leggjum mikla áherslu á gott samstarf við Keflavíkurflugvöll og þegar þetta tækifæri kom upp sáum við strax spennandi möguleika á að skapa nýja verslun á svæðinu. Við viljum meðal annars gera íslenskum skartgripum hærra undir höfði og gefa þeim aukið rými, samhliða sterku úrvali alþjóðlegra vörumerkja í sólgleraugum og öðrum fylgihlutum. Við hlökkum til að þróa Beyond Shades áfram og taka á móti farþegum í nýju versluninni,“ segir Liam Grundy, framkvæmdastjóri Ísland Duty Free í fréttatilkynningu. 

Ómar Svavarsson framkvæmdastjóir viðskipta hjá Keflavíkurflugvelli segir að fjölbreyttur hópur fólks fari um flugstöðina. 

„Beyond Shades bætir nýjum valkosti við flugstöðina, með blöndu af íslenskri hönnun og þekktum alþjóðlegum vörumerkjum, og gefur okkur um leið tækifæri til að prófa nýtt framboð. Slík tímabundin verkefni geta gefið okkur verðmæta reynslu af því hvað höfðar til farþega og hjálpar okkur í að þróa verslunarframboðið á Keflavíkurflugvelli,“ segir Ómar, 

Opnun Beyond Shades er liður í að nýta verslunarrými flugstöðvarinnar á markvissan hátt og um leið skapa svigrúm til að meta nýtt verslunarframboð. Tímabundinn rekstur gefur jafnframt tækifæri til að fylgjast með viðbrögðum farþega og reynslu af nýju framboði.

Vinna við áframhaldandi þróun verslunar- og veitingaframboðs á Keflavíkurflugvelli stendur yfir. Beyond Shades verður rekin tímabundið til eins árs á meðan unnið er að næstu skrefum varðandi framtíðarskipulag verslunar- og veitingasvæða flugstöðvarinnar.

Í versluninni má finna skart og sólgleraugu.

Í versluninni má finna skart og sólgleraugu. Ljósmynd/Aðsend

Skartgripir frá Sif Jakobs fást í versluninni.

Skartgripir frá Sif Jakobs fást í versluninni. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅