Máttu ekki neita bandarískum atvinnuleitanda um inngöngu í landið

Kærunefnd útlendingamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um að vísa bandarískum manni frá landinu. Maðurinn var að eigin sögn kominn til landsins til að leita sér að vinnu og ætlaði að búa hjá kærustu sinni.

Maðurinn kom til landsins 11. febrúar síðastliðinn, frá Baltimore í Bandaríkjunum. Hann var stöðvaður í Leifsstöð og loks vísað frá landinu, þennan sama dag. Kærði hann ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála.

Kom fram í ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum að maðurinn hefði ekki atvinnuleyfi og hafi ekki getað sýnt fram á nægileg fjárráð til framfærslu á meðan á dvöl hans stæði. 

Fram kom í lögregluskýrslu að landamæravörður hafi kallað til lögreglu vegna mannsins. Hann hafi greint frá því að tilgangur dvalar hans hér á landi væri að leitast eftir atvinnu en hann hafi ekki haft farmiða aftur frá landinu. Maðurinn hafi greint lögreglumönnum frá því að tilgangur ferðarinnar hafi einnig verið að hitta kærustu sína, sem búi hér á landi, og hafi ætlað að dvelja hjá henni.

Aðspurður um hvar hann ætlaði sér að leita að atvinnu hafi hann sagst ætla að leita að starfi á skyndibitastað eða öðru slíku. Maðurinn hafi sagst vita að hann þyrfti að sækja um atvinnu- og dvalarleyfi til að starfa hér á landi. Hann hafi ekki getað tengst netbanka sínum til að sýna fram á að hann hafi haft yfir nægu fjármagni að ráða en greint frá því að vera með 6.000 bandaríkjadali á reikningi sínum. Kærastan hafi staðfest að hún ætti á von á honum og að hann hygðist dvelja hjá henni. Hún hafi einnig greint frá því að hún myndi fara með hann til Útlendingastofnunar til að sækja um atvinnuleyfi.

Frávísun

Manninum var eins og áður segir vísað frá landi sama dag og hann kom en móðir kærustunnar aðstoðaði hann við að kaupa flugmiða aftur til Baltimore. Hann kærði frávísunina samdægurs til kærunefndar útlendingamála.

Í kærunni var bent á að maðurinn nyti sem bandarískur ríkisborgari undanþágu frá áritunarskyldu til landsins og mætti dvelja í allt að 90 daga á Íslandi án vegabréfsáritunar. Samkvæmt lögum um útlendinga skyldi útlendingur sækja um sitt fyrsta dvalarleyfi áður en hann kæmi til landsins og væri honum óheimilt að koma til landsins fyrr en umsóknin hafi verið samþykkt. Frá þessu væri heimilt að víkja væri umsækjandi undanþegin áritunarskyldu.

Af skýrslu lögreglu mætti ráða að maðurinn hafi verið meðvitaður um að þurfa að sækja fyrst um atvinnu- og dvalarleyfi hygðist hann starfa hér. Því hafi verið ranglega haldið fram að hann hafi ætlað að hefja störf án tilskyldra leyfa.

Var í kærunni því einnig andmælt að maðurinn hafi ekki haft næg fjárráð til dvalar á Íslandi. Hann hafi greint lögreglu frá innistæðu sinni á bankareikningi. Sú innistæða væri margföld sú framfærsla sem honum bæri að sýna fram á. Hann hafi jafnframt greint frá dvalarstað hjá kærustu sinni en hún hafi einnig verið reiðubúin að ábyrgjast framfærslu hans. Lögreglu hafi borið að leiðbeina manninum í samræmi við 7. grein stjórnsýslulaga um hvaða gögn hann gæti lagt fram til að sýna fram á framfærslu. Lögregla hafi sömuleiðis getað kannað betur fjölskylduaðstæður mannsins og veitt honum tækifæri á að hafa samband við bankastofnun sína.

Óheimilt

Í niðurstöðu kærunefndar útlendingamála segir að sem bandarískur ríkisborgari sé maðurinn undanþeginn skyldu til að hafa vegabréfsáritun fyrir komu til landsins og sé því heimilt dvelja hér á landi í 90 daga án þess að hafa vegabréfsáritun. Samkvæmt útlendingalögum geti einstaklingur sem hyggist leggja fram umsókn um atvinnu- og dvalarleyfi lagt fram umsókn eftir komuna til landsins sé hann undanþeginn áritunarskyldu. Gögn málsins bendi ekki til þess að maðurinn hafi áður starfað ólöglega hér á landi og hafi því ekki verið ástæða til að draga í efa trúverðugleika framburðar mannsins. Á grundvelli áritunarfrelsis síns hafi manninum verið heimilt að dveljast hér á landi, kanna atvinnumöguleika sína og jafnframt leggja fram umsókn um atvinnu- og dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun hygðist hann gera það, svo lengi sem hann dveldi ekki umfram heimilan dvalartíma.

Þegar kemur að fjárráðum mannsins, þegar hann kom til landsins, þá segir nefndin að maðurinn hafi greint frá því að vera með 6.000 bandaríkjadali á bankareikningi sínum, sem samsvarað hafi 739.620 íslenskum krónum á gengi umrædds dags, en hann hafi ekki getað tengst netbanka sínum til að sýna fram á það. Fjármagn sem maðurinn hafi sagst hafa aðgang að hafi nægt fyrir dvöl hans og flugmiða til heimferðar, einkum með hliðsjón af því að maðurinn hafi ætlað dvelja á heimili kærustu sinnar. 

Af skýrslu lögreglu yrði ekki ráðið að hvaða leyti maðurinn hafi ekki náð að tengjast netbanka sínum, hvort að hann hafi ekki náð að tengjast internetinu eða hvort um tæknilega örðugleika hafi verið að ræða í síma hans. Jafnframt yrði ekki ráðið af skýrslu lögreglu að honum hafi verið leiðbeint með frekari hætti um mikilvægi þess að afla staðfestingar frá bankastofnun sinni eða sýna fram á innistæðu á bankareikningi sínum til að geta sýnt fram á nægileg fjárráð til dvalar hér á landi og til heimferðar. Með vísan til atvika málsins hafi leiðbeiningarskyldu lögreglunnar verið áfátt að þessu leyti.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála er því sú að skilyrði útlendingalaga fyrir frávísun mannsins frá landinu hafi ekki verið uppfyllt og er því ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, þessa efnis, felld úr gildi.
 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅