Ógnvekjandi tölfræði fyrir Manchester United – Fall úr úrvalsdeildinni yfirvofandi?
Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 10. nóvember 2026 10:30
Bruno Fernandes - Youri Tielemans Getty Images
Manchester United er í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir fyrstu tíu leiki tímabilsins og tölfræðin gefur stuðningsmönnum félagsins litla ástæðu til bjartsýni. Búist er við að Carrick verði rekinn á allra næstu dögum.
United situr í 18. sæti með aðeins átta stig eftir einn sigur í fyrstu tíu leikjunum.
Lið Michael Carrick náði 4-4 jafntefli gegn Aston Villa um helgina eftir dramatíska endurkomu en staðan er áfram grafalvarleg.
Samkvæmt The Sun hafa ellefu af þeim fimmtán liðum sem setið hafa í fallsæti eftir tíu umferðir síðustu fimm tímabil að lokum fallið úr úrvalsdeildinni.
Varnarvandamál United hafa verið áberandi en aðeins Crystal Palace og Ipswich hafa fengið á sig fleiri mörk á tímabilinu.
Pressan á Carrick eykst stöðugt en stuðningsmenn félagsins hafa jafnframt beint reiði sinni að forráðamönnum United.
Næsti leikur United verður gegn Liverpool á Anfield eftir landsleikjahléið.
Þar gæti staðan orðið enn verri fyrir enska stórveldið sem hefur aldrei fallið úr úrvalsdeildinni frá stofnun hennar árið 1992.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗