Viðurkennir að hafa verið í rúminu með giftri konu þegar byssu var beint að honum: „Ég á eftir að deyja“
Leikarinn Dustin Hoffman hélt að hann myndi deyja þegar eiginmaður giftrar konu kom að honum í rúminu með konunni, en eiginmaðurinn var æfur af reiði.
„Ég átti í ástarsambandi við gifta konu,“ sagði Hoffman í þætti Conan O’Brien, sem kom út 9. nóvember. Hoffman, sem tók fram að sambandið hefði átt sér stað þegar hann var ungur maður, sagði að konan hefði boðið honum heim til sín eftir að eiginmaðurinn sofnaði.
„Og hún hélt að þegar eiginmaður hennar sofnaði, þá myndi hann halda áfram að sofa. Við vorum þarna, í miðjum klíðum, þegar hann gekk inn með byssu. Hann beindi henni að mér. Og hann sagði ég man vel hvað hann sagði ‚Komdu þér út, komdu þér út.‘“
Hoffman, sem er 89 ára, mundi ljóslifandi hvernig það var að fá byssu beint að sér og hugsa með sér að hann myndi „deyja“.
„Þegar byssu er beint að manni, þá virkar hlaupiðmiklu stærra en það er í raun og veru,“ rifjaði hann upp. „Og maður gerir sér grein fyrir því að á hverri stundu, hvenær sem er, gæti hann hleypt af því fingurinn er á gikknum. Og maður hugsar... og maður áttar sig á því: Það er komið að þessu... ég mun deyja, ég mun deyja á næstu sekúndu. Og maður gerir hvað sem er, maður gerir hvað sem er til að forðast að verða drepinn.“
Hoffman er um þessar mundir að kynna endurminningar sínar, Look at Me.
Hoffman greinir í bókinni frá því að gerð kvikmyndarinnar The Graduate hefði verið hræðileg upplifun. Hann skrifaði að leikstjórinn Mike Nichols hefði breyst í „gjörólíka manneskju“ um leið og tökur hófust.
„Skaplyndi hans gat breyst snögglega. Ég man ekki eftir atriðinu sjálfu, en ég mun aldrei gleyma hvassri röddu Mike þegar hann sagði við mig eftir eina töku: ‚Hvað varstu að gera? … Gerðu þveröfugt við það.‘“
Engu að síður sló myndin rækilega í gegn og færði leikaranum hans fyrstu Óskarsverðlaunatilnefningu. Í myndinni leikur Hoffman ungan mann sem er dreginn á tálar af móður vinar hans, eldri giftri konu. Persóna Hoffman verður hins vegar ástfanginn af dóttur hennar.
Look at Me kemur í verslanir þann 10. nóvember.
Hoffman árið 1966.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗