United þarf að borga meira en milljarð

Mauricio Pochettino gæti tekið við United.

Mauricio Pochettino gæti tekið við United. AFP/Jamie Squire

Manchester United þyrfti að greiða um 10 milljónir dollara, 1,3 milljarð króna, til að losa Mauricio Pochettino undan samningi hans við bandaríska knattspyrnusambandið, samkvæmt The Athletic.

Búist er við því að Pochettino, sem er fyrrverandi knattspyrnustjóri Tottenham og Chelsea, verði á meðal þeirra sem koma til greina sem arftaki Michaels Carrick sem verður væntanlega rekinn í dag.

Það myndi kosta nokkrar milljónir dollara til viðbótar að fá með honum aðstoðarmenn hans til margra ára. Núverandi samningur hans, sem tilkynntur var í ágúst, gildir til loka HM 2030.

Pochettino hefur áður talað um að hann sakni enska boltans en hann stýrði þar síðast Chelsea frá 2023 til 2024.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅