Reksturinn betri en áður var ætlað
Síldarvinnslan segir gott árferði hafa verið á mörkuðum í ár og að veiðar og vinnsla hafi gengið vel. Félagið hefur uppfært afkomuspá sína fyrir árið. Ljósmynd/SVN/Smári Geirsson
Síldarvinnslan gerir ráð fyrir 21,7 til 23,8 prósenta hærri EBITDA-hagnaði af samstæðu félagsins á árinu en áður hafði verið settur fram í afkomuspá.
Í jákvæðri afkomuviðvörun til Kauphallarinnar í gærkvöldi segir SVN að í maí hafi verið gert ráð fyrir að EBITDA-hagnaður ársins yrði á bilinu 105-115 milljónir evra, en endurskoðuð áætlun stjórnenda gerir ráð fyrir EBITDA-hagnaði á bilinu 130-140 milljónir evra.
EBITDA vísar til afkomu fyrirtækja áður en tekið er tillit til vaxtagreiðslna og vaxtatekna, skattgreiðslna og afskrifta.
Í krónum talið er ætlaður EBITDA-hagnaður ársins 17,8 til 19,2 milljarðar króna.
Fram kemur að við vinnu stjórnenda að uppgjöri félagsins eftir fyrstu níu mánuði ársins hafi komið í ljós að afkoman væri betri en fyrri áætlanir hafi gert ráð fyrir.
EBITDA-hagnaður eftir fyrstu níu mánuði ársins sé þegar við neðri mörk fyrri afkomuspár fyrir árið í heild.
„Gott árferði hefur verið á mörkuðum félagsins auk þess sem veiðar og vinnsla hafa gengið vel á árinu,“ segir í tilkynningunni.
Félagið birtir níu mánaða uppgjör sitt 19. nóvember næstkomandi.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗