Atli Steinn hefur verið í níu opnum samböndum: „Ég get alveg bara slökkt á þessu“

Atli Steinn Guðmundsson er gestur í hlaðvarpinu Marta María býður heim. mbl.is/Óttar Geirsson

Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður Morgunblaðsins hefur lifað viðburðaríku og óhefðbundnu lífi. Hann hefur meðal annars starfað sem strippari á hommaklúbbum í Evrópu, búið í Noregi og verið í níu opnum ástarsamböndum. Í hlaðvarpsþættinum Marta María býður heim ræðir hann ástina, samböndin og hvernig lífið tók óvænta stefnu þegar hann kynntist núverandi konu sinni, Unni.

Atli Steinn hefur aldrei farið hefðbundnar leiðir í lífinu. Hann tók meðal annars meðvitaða ákvörðun um að eignast ekki börn og segist vera sáttur við þá ákvörðun. Ástalífið hefur sömuleiðis verið óhefðbundið en hann hefur verið í fjölmörgum opnum samböndum í gegnum tíðina.

„Ég hef nú verið í níu slíkum,“ segir Atli Steinn þegar Marta María spyr hann út í opin sambönd.

Hann segir að ákveðnar reglur þurfi að gilda í slíkum samböndum og að fólk verði að vera sammála um fyrirkomulagið. Sjálfur hafi hann aldrei átt í vandræðum með að aðlagast ólíkum sambandsformum.

Unnur Jóhannsdóttir og Atli Steinn Guðmundsson eru búsett á Malaga á Spáni. Ljósmynd/Instagram

Kynntist ástinni á Snapchat

Atli Steinn býr nú í Málaga á Spáni ásamt Unni, núverandi konu sinni, en þau kynntust með heldur óvæntum hætti á Snapchat þegar hann bjó enn í Noregi.

Hann var þá í opnu sambandi með fyrrverandi konu sinni, Anítu, en sambúðin hafði reynst þeim erfið. Þegar leiðir þeirra skildi tók nýr kafli við í lífi hans.

Atli Steinn segir að hann hafi rekist á mynd af konu í Bónuspeysu á Snapchat og áttað sig á því að þar hlyti að vera Íslendingur á ferð. Þau Unnur fóru að spjalla og fljótlega þróuðust samskiptin í eitthvað meira.

Upphaflega ætlaði hann að leigja íbúð hjá Unni í Sandefjord í Noregi áður en hann flytti einn til Spánar. Þau urðu hins vegar par skömmu síðar og ákváðu að flytja saman til Spánar ásamt yngri dóttur hennar.

„Hún er alveg nóg fyrir mig“

Þótt Atli Steinn hafi áður verið í opnum samböndum segir hann að slíkt komi ekki til greina í sambandinu við Unni.

„Nei, alls ekki, við erum alveg „straight“,“ segir hann þegar Marta María spyr hvort þau séu í opnu sambandi.

Hann segir að Unnur hafi sjálf furðað sig á því hversu auðvelt honum hafi reynst að breyta um lífsstíl.

„Mér finnst það bara eins og að slökkva ljósrofa,“ segir hann.

Atli Steinn segist ekki sakna þess að vera í opnu sambandi og telur að þegar rétta manneskjan verði á vegi manns sé sjálfsagt að taka tillit til þess hvernig hún vilji haga sambandinu.

„Hún er alveg nóg fyrir mig,“ segir hann.

Ákvað að eignast ekki börn

Í þættinum ræðir Atli Steinn einnig þá ákvörðun sína að eignast ekki börn. Hann segir hana meðal annars tengjast því hversu erfitt barn hann hafi sjálfur verið.

Hann lýsir sér sem afar ofvirkum dreng sem hafi verið foreldrum sínum erfiður á köflum. Hann hafi því snemma ákveðið að barneignir væru ekki endilega fyrir hann.

„Ég hef enga þörf fyrir að eiga börn,“ segir hann og bætir við að hann njóti þess að fylgjast með börnum bróður síns vaxa úr grasi.

Atli Steinn segist sáttur við þær ákvarðanir sem hann hefur tekið í lífinu og sér ekki eftir því að hafa farið óhefðbundnar leiðir.

Í dag segist hann hafa fundið hamingjuna með Unni á Spáni og vonast til þess að geta haldið áfram að starfa sem blaðamaður um ókomin ár.

Hægt er að hlusta á viðtalið við Atla Stein í heild sinni í helstu streymisveitum og á hlaðvarpsvef mbl.is. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅