Þetta verða hluthafar sameinaðs félags
Í hlutafjárútboðinu sem nú er hafið í Bláa lóninu verða gefnir út og seldir 150 milljón nýir hlutir á lágmarksgenginu 95 krónur á hlut, en það samsvarar 14,25 milljörðum. Fyrir eru hlutir í félaginu 875 milljónir.
Þar er þó ekki öll sagan sögð, því Bláa lónið stendur nú í kaupum á ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic adventures og hluti af þeim kaupum er útgáfa nýrr hlutabréfa í Bláa lóninu, samtals 246 milljónir hluta. Þá verða einnig gefnir út 25 milljón hlutir vegna aukinna kaupa Bláa lónsins í hlutdeildarfélögum.
Samtals verða því hlutar í Bláa lóninu 1.296 milljónir og eru þeir 150 milljón hlutir sem gefnir verða út og seldir í hlutafjárútboðinu 11,57% í sameinuðu félagi. Gert er ráð fyrir að þynning núverandi hluthafa Bláa lónsins eftir kaupin á Arctic adventures verði 19,4%.
Stærsti eigandi Bláa lónsins í dag með 24,9% hlut er Kólfur ehf., í eigu Gríms Sæmundsen, stofnanda félagsins, og eiginkonu hans. Þar á eftir koma fimm lífeyrissjóðir með samtals 35,4% hlut. Næst er eignarhaldsfélagið Stoðir hf með 4,3% hlut, en það er jafnframt stærsti eigandi Arctic adventures.
Eftir kaupin á Arctic adventures verður Kólfur áfram stærsti hluthafinn með 19,4% hlut, en Stoðir næst stærsti hluthafinn með 12,5%. Fyrrnefndir lífeyrissjóðir koma þar næst auk tveggja fjárfestingasjóða.
Í kynningu vegna hlutafjárútboðsins kemur fram að áætlað sé að rekstrarhagnaður (EBITDA) sameinaðs félags á næsta ári muni aukast um 47% frá þessu ári og nema 72 milljón evrum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/46/18/1461894.jpg)

