Taldi Hörð á lokametrunum

Kristrún Frostadóttir ræddi málefni forstjóra Landsvirkjunar á þingi í gær, en var ekki vel kunnug því hvernig ráðningu hans væri háttað. mbl.is/Eyþór

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra svaraði í gær fyrirspurn Guðrúnar Hafsteinsdóttur formanns Sjálfstæðisflokks um uppsögn Harðar Arnarsonar, fv. forstjóra Landsvirkjunar, en var ekki vel með á nótunum um hvernig ráðningu hans hjá fyrirtækinu væri háttað.

Hins vegar virðist forsætisráðherra hafa gengið út frá því að þar myndu forstjóraskipti fara fram innan tíðar, þótt þau hafi átt sér stað fyrr en hugað var.

„Auðvitað finnst mér leitt að hann hafi sagt af sér með nokkra mánuði eftir af sinni skipun,“ sagði Kristrún.

Sú var ekki raunin, Hörður gegndi ekki embætti með afmarkaðan skipunartíma. Hann var ráðinn forstjóri ótímabundið 2009, en samkvæmt heimildum blaðsins innan úr Landsvirkjun er ekkert samningsbundið um tímasetningu starfsloka.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅