Tækifæri þrátt fyrir vá

Nýtt hraun meðfram varnargörðum í námunda við Bláa lónið. Útboð Bláa lónsins hefst í dag. Morgunblaðið/Eggert

Greiningarfyrirtækið Akkur metur hlut í Bláa lóninu á um 133 krónur, rúmum 40% yfir viðmiðunargengi í hlutafjárútboði sem hefst í dag.

Bætt afkoma og ný verkefni styðja verðmatið en jarðhræringar og skattahækkanir skapa óvissu.

Útboðið hefst í dag, 10. nóvember, kl. 10 og lýkur föstudaginn 13. nóvember kl. 16. Verða þar boðnar 150 milljónir nýrra hluta. Gengið verður 95 krónur í tilboðsbók A og lágmarksgengið hið sama í tilboðsbók B. Fyrsti viðskiptadagur er fyrirhugaður 20. nóvember.

Fram kemur í greiningu Akkurs að Bláa lónið hafi greitt fyrir greiningu fyrirtækisins sem var birt í gær. Greiðslan hafi verið óháð niðurstöðu matsins.

Afkoma Bláa lónsins batnaði verulega í fyrra eftir rekstrartruflanir vegna jarðhræringa. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, nam 29,4 milljónum evra, samanborið við 9,6 milljónir árið 2024.

Dagsgestum í Svartsengi fjölgaði úr 666 þúsundum í 834 þúsund milli ára. Tekjur af baðaðgangi á hvern dagsgest jukust um 17% frá 2023 til 2025.

Akkur spáir því að EBITDA samstæðunnar, að Arctic Adventures meðtöldu, verði 70,1 milljón evra á næsta ári og tæpar 127 milljónir árið 2030. Tekjur fari á sama tíma úr 291 milljón evra í 431 milljón.

Veðja á vöxt utan Svartsengis

Uppbygging Mountain Retreat í Þjórsárdal vegur þungt í vaxtaráformunum. Þar eiga að rísa 40 herbergja lúxushótel, allt að 40 gistiskálar og böð. Heildarkostnaður er áætlaður 139 milljónir evra. Opna á fyrstu skálana í júní á næsta ári og á starfsemin að vera komin að fullu í gang á fyrri hluta árs 2028.

Samruni við Arctic Adventures breikkar jafnframt tekjugrunn félagsins. Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samrunann og er gert ráð fyrir að viðskiptunum ljúki í þessum mánuði.

Auknir skattar

Verðmatið byggist á því að afkoman haldi áfram að batna og uppbyggingin skili tilætluðum tekjum. Grunnspáin gerir ráð fyrir því að ekki komi til lokana í Svartsengi. Rekstrarstöðvunartryggingar félagsins bæta ekki stöðvun vegna náttúruhamfara.

Fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24% skapar einnig óvissu. Akkur gerir ráð fyrir að hækkuninni verði velt út í verðlag en bendir á að það geti dregið úr eftirspurn.

Boðað til opins fundar

Bláa lónið og Landsbankinn hafa boðað til opins kynningarfundar klukkan 10 í Hörpu í dag, þriðjudaginn 10. nóvember, í tengslum við hlutafjárútboðið og umsókn um töku allra hluta félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Þá verður beint vefstreymi af fundinum á vefsíðum Landsbankans og Bláa lónsins.

Í tilkynningu frá Bláa lóninu kemur fram að fundurinn sé ætlaður fjárfestum og almenningi. Þau Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, og Elvar Þór Karlsson, forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans, munu fara yfir fyrirkomulag útboðsins og svara spurningum fundargesta.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅