Styttist í ákvörðun hjá Wenger

Arséne Wenger

Arséne Wenger AFP/Kirill Kudryavtsev

Búist er við að Arsène Wenger ákveði í þessari viku hvort hann bjóði sig fram gegn Gianni Infantino til forseta FIFA, samkvæmt The Athletic.

UEFA er meðal þeirra sem hvetja Wenger, sem er fyrrverandi knattspyrnustjóri Arsenal, til að bjóða sig fram áður en fresturinn rennur út 18. nóvember.

Wenger, sem er 77 ára, hefur verið yfirmaður alþjóðlegrar knattspyrnuþróunar hjá FIFA frá árinu 2019.

Hann fjarlægði sig opinberlega frá áformum Infantinos, sem síðar var horfið frá, um að selja hlut í viðskiptastarfsemi FIFA, þar á meðal heimsmeistaramótinu.

„Ég trúi því staðfastlega að FIFA eigi að vera sjálfstætt og þjóna íþróttinni okkar af alúð, gagnsæi og heilindum,“ sagði hann í yfirlýsingu í ágúst.

Frambjóðendur þurfa stuðning fimm knattspyrnusambanda til að geta boðið sig fram í kosningunum í mars.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅