Beint: Kynning á hlutafjárútboði Bláa lónsins
Útboð á hlutafé í Bláa lóninu hefst nú í dag klukkan 10:00, en samhliða því er haldinn kynningarfundur fyrir fjárfesta og almenning þar sem farið verður yfir fyrirkomulag útboðsins og gefið tækifæri á því að spyrja spurninga.
Á fundinum munu Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, og Elvar Þór Karlsson, forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans, kynna útboðið og svara spurningum, en hægt er að horfa á streymi af fundinum hér að neðan.
Grunn upplýsingar um almennt hlutafjárútboð og skráningar félagsins á aðalmarkað Kauphallarinnar samkvæmt tilkynningu eru eftirfarandi:
- Útboð á hlutafé Bláa Lónsins hefst þriðjudaginn 10. nóvember kl. 10.00 og lýkur kl. 16.00, föstudaginn 13. nóvember.
- Til sölu eru að 150.000.000 hlutir í Bláa Lóninu, þar af 45.000.000 (30%) í áskriftarbók A og 105.000.000 (70%) í áskriftarbók B.
- Tekið verður við áskriftum á bilinu 100.000 kr. til 20.000.000 kr. í áskriftarbók A á genginu 95 kr./hlut.
- Áskriftir yfir 20.000.000 kr. skulu berast í áskriftarbók B.
- Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins verði birtar eigi síðar en 16. nóvember 2026 og að hlutabréfin verði afhent kaupendum eigi síðar en 20. nóvember 2026.
- Gjalddagi og eindagi greiðsluseðla vegna útboðsins er 18. nóvember 2026.
- Áætlað er að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann 20. nóvember 2026.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗