Nýtt húsnæði SVN verður tilbúið í mars
Vinnupallar hafa verið fjarlægðir á skrifstofuhúsnæði Síldarvinnslunnar og lokið verður við að klæða húsið að utan í þessari viku. Ljósmynd/SVN/Guðmundur Helgi Sigfússon
Framkvæmdir við skrifstofuhúsnæði Síldarvinnslunnar (SVN) að Hafnarbraut 6 í Neskaupstað eru sagðar ganga vel.
„Ofan á húsið var þriðja hæðin byggð og önnur hæðin verður endurinnréttuð. Auk þess var byggt vestan við húsið og í þeirri byggingu verður lyfta,“ segir á vef SVN.
Á neðstu hæð hússins verður svo verslun auk skrifstofa Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað, SÚN.
„Að undanförnu hefur verið unnið að einangrun og klæðningu hússins utanvert en nú hafa vinnupallar verið fjarlægðir og má því sjá betur en áður hvernig húsið mun líta út.“
Haft er eftir Guðmundi Helga Sigfússyni, umsjónarmanni framkvæmdanna, að þær gangi samkvæmt áætlun í öllum meginatriðum.
„Það verður lokið við að klæða húsið utan í þessari viku. Allir milliveggir á báðum hæðum eru komnir upp og það verður byrjað að sparsla og mála á morgun,“ segir hann.
Þá sé öll lagnavinna komin mjög vel á veg.
„Í reyndinni eru allar framkvæmdir við húsið á áætlun og gert er ráð fyrir að skrifstofuhúsnæðið verði tekið í notkun í marsmánuði næstkomandi. Þetta lítur sem sagt allt ljómandi vel út,“ segir Guðmundur Helgi.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗