Alfreð kominn til Afríku
Íslenski atvinnuleitar- og ráðningarvettvangurinn Alfreð hefur hafið starfsemi í Gabon í Mið-Afríku.
Þetta er fyrsta landið í Afríku þar sem Alfreð er í boði og jafnframt í fyrsta sinn sem þjónustan er aðgengileg á frönsku.
Ingibjörg Stephensen Ambonguilat er sérleyfishafi Alfreðs í Gabon. Anna Katrín Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Alfreðs og Halldór Friðrik Þorsteinsson, einn eigenda félagsins og stjórnarmaður, voru viðstödd opnunina.
Samkvæmt tilkynningu frá Alfreð vegna þessa kemur fram að atvinnuleit í Gabon fari að miklu leyti fram á samfélagsmiðlum. Þjónustunni er því ætlað að sameina atvinnuauglýsingar, umsóknir og úrvinnslu þeirra á einum vettvangi.
Í landinu búa um 2,6 milljónir manna.
Gabon er fimmta landið utan Íslands þar sem Alfreð er í boði. Fyrir er félagið með starfsemi í Tékklandi, á Möltu, í Færeyjum og á Grænlandi.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗