Selenskí kominn til Danmerkur
Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, kom til Danmerkur í dag til að ræða hernaðarstuðning, loftvarnir og öryggi orkuinnviða við leiðtoga Norðurlanda, að sögn danskra yfirvalda.
„Ég er stolt af því að bjóða Selenskí forseta og leiðtoga Norðurlanda velkomna til Danmerkur. Barátta Úkraínumanna fyrir frjálsri Úkraínu og frjálsri Evrópu heldur áfram,“ sagði Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, í yfirlýsingu.
Lögreglan stendur vörð fyrir utan hótel skammt frá danska utanríkisráðuneytinu í morgun. AFP/Martin Sylvest
Norðurlöndin eru meðal helstu stuðningsríkja Úkraínu og Selenskí fór til Óslóar í lok október til að funda með bandarískum sendimönnum.
Beinar samningaviðræður milli Kænugarðs og Moskvu, með milligöngu Bandaríkjanna, hófust einnig í morgun í Abú Dabí.
„Nærri fimm árum eftir allsherjarinnrásina heldur sprengjuregnið, sem beinist að almennum borgurum, hjálparmiðstöðvum og vatns- og hitaveitum, áfram. Þess vegna verðum við að vera föst fyrir,“ sagði Frederiksen.
Lögreglan í Kaupmannahöfn tilkynnti í morgun að hún myndi auka öryggisgæslu á almannafæri næstu daga. Hún hefur sett bann við notkun dróna yfir höfuðborginni til 12. nóvember.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
