Nordland-fylki berskjaldað

Stjórnendur úr norska hernum, vísinda- og stjórnmálamenn ganga á rökstóla í Bodø, höfuðstað Nordland-fylkis, í dag og ræða öryggismál á norðurslóðum. Ljósmynd/Wikipedia.org/Røed

Nordland-fylkið norska er berskjaldað fyrir netárásum og skemmdarverkum, meðal annars á rafmagns- og vatnsveitum. Þetta telur Gunhild Hoogensen Gjørv, prófessor í öryggisfræðum og landfræðilegri stjórnmálafræði (n. geopolitikk) við Háskólann í Tromsø, en hún ræddi málið í morgunútvarpi norska ríkisútvarpsins NRK í morgun.

„Við þurfum líka á betri innviðum að halda norður í landi,“ segir prófessorinn og kallar enn fremur eftir betri viðbúnaðaráætlunum þótt hún taki það fram að aukin spenna þurfi ekki að tákna að stríðsátök séu yfirvofandi.

Aukin hernaðarleg þýðing

Gjørv bendir á að norðurslóðir hafi öðlast aukna hernaðarlega þýðingu, meðal annars vegna hernaðarmannvirkja Rússa á Kólaskaga, og vísar því á bug að hernaðaruppbygging í einhverjum tilteknum landshluta geri hann berskjaldaðri fyrir árásum.

„Við sjáum að mismunandi tegundir ógnaraðgerða eiga sér stað um alla Evrópu, ekki bara hér á norðurslóðum. Við erum hluti af þeirri mynd,“ segir Gjørv.

Í dag funda stjórnendur á vegum hersins, vísindamenn og stjórnmálamenn í Bodø um stöðu öryggismála á norðurslóðum.

NRK

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅